Sjóðfélagi sem metinn er með 50% örorku eða meira á rétt á örorkulífeyri úr sjóðnum í samræmi við áunnin réttindi, nema kveðið sé á um annað í samþykktum.
Uppfylli sjóðfélagi eftirfarandi skilyrði á hann einnig rétt á framreikningi á þeim réttindum sem ætla mætti að hann hefði áunnið sér fram til 65 ára aldurs, nema kveðið sé á um annað í samþykktum.
Greitt iðgjöld til sjóðsins í a.m.k. þrjú af undanfarandi fjórum almanaksárum
Greitt iðgjöld til sjóðsins í a.m.k. sex mánuði á undanfarandi tólf mánuðum.
Ekki átt sök á orkutapinu sjálfur t.d. vegna ofnotkunar áfengis, lyfja eða fíkniefni
Hafi orðið fyrir tekjuskerðingu af völdum orkutapsins
Örorkulífeyrir er greiddur þar til sjóðfélagi hefur aftur öðlast vinnufærni og er endurmat á örorku í höndum trúnaðarlæknis. Ef orkutap er varanlegt er örorkulífeyrir greiddur fram að töku ellilífeyris. Örorkulífeyrir hefur ekki áhrif til skerðingar á ellilífeyrisréttindum.
Nánari upplýsingar um örorkulífeyri má finna í kaflanum „Örorkulífeyrir“ í samþykktum sjóðsins.
Hægt er að sækja um örorkulífeyri inni á Mínum síðum.
Þú getur skráð þig inn á Mínar síður með rafrænum skilríkjum. Einnig hefur þú aðgang að Mínum síðum í gegnum Netbanka Arion banka undir flipanum „Lífeyrissparnaður“.
Ef þú ert ekki með rafræn skilríki má fylla út eyðublað.


Lífeyrir er greiddur út mánaðarlega, eftir á, á síðasta virka degi hvers mánaðar
Lífeyrisréttindi eru verðtryggð
Afgreiðsla lífeyrisumsókna tekur að jafnaði 4 til 8 vikur
Afgreiðsla örorkulífeyrisumsókna tekur almennt lengri tíma
Tekjuskattur er greiddur af öllum útgreiðslum. EFÍA sér um að standa skil á staðgreiðslu til ríkisins. Nánar á vefsíðu RSK.
Mælt er með að leita ráðgjafar hjá Tryggingastofnun vegna mögulegra áhrifa sem útgreiðslur lífeyrissparnaðar geta haft á greiðslur frá TR. Nánar á vefsíðu TR.
Áhættudreifing er mikilvægur þáttur í uppbyggingu eignasafna, sérstaklega þeirra sem hafa langan fjárfestingartíma þar sem með henni er dregið úr sveiflum í ávöxtun. Með hliðsjón af þessu hefur stjórn EFÍA sett sér það markmið í fjárfestingarstefnu undanfarinna ára að byggja upp dreift og fjölbreytt eignasafn bæði innanlands og erlendis.
Frá afnámi fjármagnshafta fyrri hluta árs 2017 hefur hlutfall erlendra eigna hækkað verulega í eignasöfnum EFÍA. Meginþungi var lengi vel á fjárfestingu í erlendum hlutabréfum en síðustu ár hefur aukin áhersla verið lögð á erlend skuldabréf og á erlendar sérhæfðar fjárfestingar. Markmið um vægi erlendra eigna í fjárfestingarstefnu hefur þannig hækkað á síðustu árum.
Í nýrri fræðslugrein á vef EFÍA, fara Ásgeir Bragason og Halldór Grétarsson, sjóðstjórar í eignastýringu fagfjárfesta hjá Arion banka, yfir erlendar sérhæfðar fjárfestingar sjóðsins.
Eftirlaunasjóður félags íslenskra atvinnuflugmanna leggur áherslu á gagnsæi og að sjóðfélagar hafi greiðan aðgang að upplýsingum um starfsemi sjóðsins. Á vefsíðu EFÍA má finna lykilupplýsingar með helstu upplýsingum um rekstur og fjárfestingar.
Hjá EFÍA er lögð áhersla á gagnsæi og greinamikið upplýsingaflæði til sjóðfélaga og því eru reglulega birtar fréttir eða fræðslugreinar um hin ýmsu málefni sem snúa að sjóðnum. Fyrir um ári var birt grein um árangur sérhæfðra fjárfestinga og hér að neðan verður framhald á þeirri umfjöllun þar sem farið verður yfir eignasafn sjóðsins í innlendum sérhæfðum fjárfestingum.
Hjá EFÍA er lögð áhersla á gagnsæi og greinagott upplýsingaflæði til sjóðfélaga og því eru reglulega birtar fréttir eða fræðslugreinar um hin ýmsu málefni sem snúa að sjóðnum. Fyrir um ári var birt grein um árangur sérhæfðra fjárfestinga og hér að neðan er framhald á þeirri umfjöllun þar sem farið verður yfir eignasafn sjóðsins í innlendum sérhæfðum fjárfestingum.
Hér á eftir verður farið yfir hvernig sjóðurinn hefur undanfarin ár byggt upp mengi innlendra sérhæfðra fjárfestinga og hver staða á eignasafninu er í dag.