Mínar síður
Sjóðfélagar
SéreignÞjónusta við sjóðfélagaÞjónusta við launagreiðendurUmsóknir
Útgreiðslur
EftirlaunMakalífeyrirBarnalífeyrirÖrorkulífeyrirErlendir ríkisborgar
Rekstur sjóðsins
ÁvöxtunEignasamsetning
Lán
LífeyrissjóðslánLánareglurVerðskráÞróun vaxta
Uppýsingar
Spurt og svarað um lánÚrræði í greiðsluerfiðleikum
Stjórnskipulag
Stjórn og nefndirStefnurÁbyrgar fjárfestingar og stjórnarhættirHlutverk sjóðsins
Regluverk
Reglur og samþykktirPersónverndVefkökurFyrirvarar
Útgefið efni
FréttirGreinarTryggingafræðileg úttektÁrsfundargögn

Við tökum vel á móti þér

Sérfræðingar Arion banka eru ávallt tilbúnir að aðstoða þig

Þjónusta við sjóðfélagaMínar síður
Þjónusta

Þjónusta við sjóðfélaga

Símatími alla virka daga milli klukkan 10-12 og 13-15.

Bókaðu tíma hjá sérfræðingum
Arion banka þegar þér hentar.

Hafðu samband

Sjóðfélagar: 444-8960

Launagreiðendur: 444-6500

efia@arionbanki.is

Styttu þér leið
LífeyrissjóðslánÚtgreiðslurSéreign
Útgefið efni
FréttirGreinar

Borgartúni 19, 105 Reykjavík

kt: 650376-0809

Reikningur: 0329-26-007171

Lífeyrissjóðsnúmer: 180

FyrirvararStillingar fótspora
  1. Lífeyrir
  2. ▸
  3. Útgreiðslur
  4. ▸
  5. Erlendir ríkisborgarar

Er­lendir rík­is­borgar­ar

Endurgreiðsla iðgjalda til ríkisborgara utan samningsríkja við brottflutning frá Íslandi

Erlendir ríkisborgarar geta, skv. 4. mgr. 19. gr. laga nr. 129/1997, sótt um endurgreiðslu iðgjalda við brottflutning frá Íslandi að því gefnu að það sé ekki bannað skv. milliríkjasamningum sem Ísland er aðili að. Ísland er nú þegar með milliríkjasamninga við yfir þrjátíu ríki sem hér verða nefnd samningsríki þ.e. Bandaríkin, Bretland, Færeyjar, Kanada og EES ríkin, auk Sviss þ.e. öll EFTA- og ESB ríkin.

EFTA ríkin: Ísland, Noregur og Liechtenstein. Einnig Sviss vegna aðildar sinnar að Vadus samningi EFTA ríkjanna.

ESB ríkin: Austurríki, Belgía, Búlgaría, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Grikkland, Holland, Írland, Ítalía, Króatía, Kýpur (gríski hlutinn), Lettland, Litháen, Lúxemborg, Malta, Portúgal, Pólland, Rúmenía, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Svíþjóð, Tékkland. Ungverjaland, Þýskaland.

Sjóðfélagi sem er með ríkisborgararétt í samningsríki: ekki er heimilt að endurgreiða honum lífeyrissparnað sinn vegna brottflutnings frá Íslandi. Ef um tvöfalt ríkisfang er að ræða er ekki heimild til endurgreiðslu ef annað er innan samningsríkis. Ríkisföngin þyrftu bæði að vera utan samningsríkja til að endurgreiðsla sé heimil. Sótt er um í gegnum systurstofnun Tryggingastofnunar í búsetulandi þegar að útgreiðslu kemur.

Sjóðfélagi sem er ekki með ríkisborgararétt í samningsríki og er ekki að flytja til samningsríkis: heimilt er að endurgreiða honum skyldu- og viðbótarlífeyrissparnað sinn vegna brottflutnings frá Íslandi. Framlag sjóðfélaga og launagreiðanda í samtryggingu er endurgreitt með verðbótum, en án vaxta en framlag sjóðfélaga og launagreiðanda í séreign er greitt með ávöxtun. Greiddur er tekjuskattur við útgreiðslu. Ef sjóðfélagi hefur öðlast svokallaðan rétt á framreikningi örorku (venjulega eftir 3 ár) getur endurgreiðsluhlutfallið lækkað.

Reimbursement of nationals of non-contracting states when moving away from Iceland

Pursuant to Article 19 (4) of Act No. 129/1997 foreign nationals can apply for reimbursement of premiums when they move away from Iceland provided that this is not prohibited under international agreements to which Iceland is party. Iceland currently has international agreements with more than 30 countries which here will be called contracting states. The contracting states are the United States, the United Kingdom, the Faroe Islands, Canada and members of the EEA, plus Switzerland, i.e. all EFTA and EU states.

The EFTA member states: Iceland, Norway and Liechtenstein. Switzerland is also included by virtue of its being a party to the Vaduz convention of the EFTA states.

The EU member states: Austria, Belgium, Bulgaria, Croatia, Cyprus (Greek Cypriot administered area), the Czech Republic, Denmark, Estonia, Finland, France, Germany, Greece, Hungary, Ireland, Italy, Latvia, Lithuania, Luxembourg, Malta, the Netherlands, Portugal, Poland, Romania, Slovakia, Slovenia, Spain, and Sweden.

A fund member who is a national of a contracting state: it is not permitted to reimburse the fund member their pension savings when moving away from Iceland. In the case of dual nationality, it is not permitted to reimburse the fund member if one nationality is a contracting state and the other is not. The nationalities both need to be non-contracting states for reimbursement to be permitted. Applications are made through the sister institute of the Icelandic Social Insurance Administration in the country of residence when it is time to make payment.

A fund member who is not a national of a contracting state and who is not moving to a contracting state: it is permitted to reimburse the fund member their mandatory and supplementary pension savings when moving away from Iceland. Contributions made by the fund member and the employer to the co-insurance fund are refunded with inflation compensation adjustments, but without interest, whereas contributions made by the fund member and the employer to a private pension account are paid out with investment returns. Income tax is payable on payouts. If the party in question has acquired the right to extrapolate disability rights (usually after 3 years) the reimbursed amount might be lower.

Greinar

16. maí 2024

Sérhæfðar innlendar fjárfestingar

Áhættudreifing er mikilvægur þáttur í uppbyggingu eignasafna, sérstaklega þeirra sem hafa langan fjárfestingartíma þar sem með henni er dregið úr sveiflum í ávöxtun. Með hliðsjón af þessu hefur stjórn EFÍA sett sér það markmið í fjárfestingarstefnu undanfarinna ára að byggja upp dreift og fjölbreytt eignasafn bæði innanlands og erlendis.

Lesa meira
14. maí 2024

Stýring erlendra eignasafna

Frá afnámi fjármagnshafta fyrri hluta árs 2017 hefur hlutfall erlendra eigna hækkað verulega í eignasöfnum EFÍA. Meginþungi var lengi vel á fjárfestingu í erlendum hlutabréfum en síðustu ár hefur aukin áhersla verið lögð á erlend skuldabréf og á erlendar sérhæfðar fjárfestingar. Markmið um vægi erlendra eigna í fjárfestingarstefnu hefur þannig hækkað á síðustu árum.

Lesa meira
15. apríl 2026

Erlendar sérhæfðar fjárfestingar

Í nýrri fræðslugrein á vef EFÍA, fara Ásgeir Bragason og Halldór Grétarsson, sjóðstjórar í eignastýringu fagfjárfesta hjá Arion banka, yfir erlendar sérhæfðar fjárfestingar sjóðsins.

Lesa meira
10. júlí 2026

Innlendar sérhæfðar fjárfestingar

Eftirlaunasjóður félags íslenskra atvinnuflugmanna leggur áherslu á gagnsæi og að sjóðfélagar hafi greiðan aðgang að upplýsingum um starfsemi sjóðsins. Á vefsíðu EFÍA má finna lykilupplýsingar með helstu upplýsingum um rekstur og fjárfestingar.

Lesa meira
5. september 2023

Sérhæfðar innlendar fjárfestingar

Hjá EFÍA er lögð áhersla á gagnsæi og greinamikið upplýsingaflæði til sjóðfélaga og því eru reglulega birtar fréttir eða fræðslugreinar um hin ýmsu málefni sem snúa að sjóðnum. Fyrir um ári var birt grein um árangur sérhæfðra fjárfestinga og hér að neðan verður framhald á þeirri umfjöllun þar sem farið verður yfir eignasafn sjóðsins í innlendum sérhæfðum fjárfestingum.

Lesa meira
20. maí 2022

Sérhæfðar innlendar fjárfestingar

Hjá EFÍA er lögð áhersla á gagnsæi og greinagott upplýsingaflæði til sjóðfélaga og því eru reglulega birtar fréttir eða fræðslugreinar um hin ýmsu málefni sem snúa að sjóðnum. Fyrir um ári var birt grein um árangur sérhæfðra fjárfestinga og hér að neðan er framhald á þeirri umfjöllun þar sem farið verður yfir eignasafn sjóðsins í innlendum sérhæfðum fjárfestingum.

Lesa meira
26. maí 2025

Innlendar sérhæfðar fjárfestingar hjá Eftirlaunasjóðs F.Í.A.

Hér á eftir verður farið yfir hvernig sjóðurinn hefur undanfarin ár byggt upp mengi innlendra sérhæfðra fjárfestinga og hver staða á eignasafninu er í dag.

Lesa meira
01 / 05