
Innlendar sérhæfðar fjárfestingar hjá Eftirlaunasjóðs F.Í.A.
Hér á eftir verður farið yfir hvernig sjóðurinn hefur undanfarin ár byggt upp mengi innlendra sérhæfðra fjárfestinga og hver staða á eignasafninu er í dag.
Hvað eru innlendar sérhæfðar fjárfestingar?
Yfirleitt er átt við fjárfestingar sem eru frábrugðnar hefðbundnum hlutabréfa- og skuldabréfafjárfestingum að því leyti að þær eru oft óskráðar, með lengri binditíma og erfiðari er að selja eignirnar til skemmri tíma. Aðgengi fagfjárfesta, svo sem lífeyrissjóða, að þessum eignaflokki hefur bæði verið í formi beinnar fjárfestingar eða óbeinnar gegnum sérhæfða sjóði. Dæmi um slíkar fjárfestingar eru:
Framtaksfjárfestingar (e. Private equity)
Hér getur verið um að ræða fjárfestingu í rótgrónum fyrirtækjum sem eru keypt að fullu eða ráðandi hlutur með það að markmiði að umbreyta fyrirtækjunum, stækka þau og bæta rekstur þeirra með tilheyrandi verðmætaaukningu. Fjárfestingin getur annars vegar verið stakar fjárfestingar í einstökum óskráðum fyrirtækjum eða hins vegar í sjóði sem sérhæfir sig í fjárfestingum óskráðra fyrirtækja.
Vísisfjárfestingar (e. Venture capital)
Fjárfestingar í nýjum og vaxandi fyrirtækjum sem eru í þróun eða á byrjunarstigi. Í þessum fyrirtækjum eru oft fyrstu fjárfestarnir fjölskylda og vinir en einnig svokallaðir engla fjárfestar (e. angel investor). Þessum fjárfestingum fylgir mikil vinna við að breyta félaginu úr hugmynd frumkvöðuls yfir í tekjuberandi arðsamt fyrirtæki. Þessum fjárfestingum fylgir mikil áhætta, en möguleiki á miklum hagnaði ef fyrirtækið nær árangri. Fyrir fagfjárfesta hefur leiðin að sprotafjárfestingum verið að fjárfesta í sjóðum sem sérhæfa sig í fjárfestingu og uppbyggingu sprota- og nýsköpunarfyrirtækja.
Innviðafjárfestingar (e. Infrastructure)
Fjárfestingar í stórum og mikilvægum mannvirkjum og kerfum sem samfélagið notar t.d. í orkufyrirtækjum, veitufyrirtækjum eða vegagerð. Þetta eru yfirleitt langtíma fjárfestingar sem skila stöðugum tekjum.
Fasteignaverkefni
Fjárfestingar í fasteignum, t.d. atvinnuhúsnæði, verslunarmiðstöðvum eða íbúðum. Geta skilað bæði leigutekjum og hagnaði við sölu eignanna.
Sérhæfð lán og önnur sambærileg verkefni
Lán sem veitt eru fyrirtækjum eða verkefnum sem ekki falla beint undir hefðbundin bankalán. Oft með sérhæfðum skilmálum og hærri vöxtum vegna meiri áhættu.
Markmiðið með sérhæfðum fjárfestingum er að ná hærri ávöxtun en með hefðbundnum fjárfestingum, þó gera megi ráð fyrir þeim fylgi oft heldur meiri áhætta.
Mynd 1. Hlutfallsleg skipting innlendra sérhæfðra fjárfestinga niður á flokka miðað við heildarskuldbindingu frá árinu 2010.
Af hverju fjárfestir lífeyrissjóðurinn í þessum eignum?
Mikilvægt er að dreifa áhættu í eignasafni lífeyrissjóðs með samvali ólíkra eignaflokka. Eftir efnahagshrunið árið 2008 jókst áhugi sjóðsins á slíkum sérhæfðum fjárfestingum innanlands og frá þeim tíma hefur sérþekking á þessu sviði vaxið hér á landi og fyrirtækjaumhverfið orðið móttækilegra fyrir slíkum fjárfestum.
Sjóðurinn hefur síðustu ár einnig fjárfest í vísissjóðum en slíkar fjárfestingar styðja meðal annars við nýsköpun og vöxt fyrirtækja á Íslandi. Umhverfi nýsköpunar- og sprotafyrirtækja hefur verið fremur hagfellt á Íslandi sem hvetur frumkvöðla til að hefja atvinnustarfsemi. Þessar fjárfestingar nema nú um 6% af innlendum sérhæfðum fjárfestingum sjóðsins.
Hvernig þróast svona fjárfestingar yfir tíma?
Í upphafi líftíma hjá sérhæfðum fjárfestingum má má oft gera ráð fyrir að virði fjárfestinga breytist lítið fyrstu misserin. Oft eru fjárfestingartímabil hjá slíkum sérhæfðum sjóðum sem fjárfest er í um fjögur ár og getur fjöldi undirliggjandi eigna verið mismunandi út frá fjárfestingastefnu og áherslum viðkomandi sjóða. Eignarhaldstíminn á hverri fjárfestingu og rekstrartími sjóðanna getur orðiðj nokkuð langur, algengt er allt að áratugur og í einhverjum tilvikum getur líftíminn verið jafnvel lengri.
Hvað er J- kúrfa?
Myndræn framsetning í formi línurits sem lýsir hvernig verðmæti sérhæfðari fjárfesting þróast yfir tíma og er formi ritsins líkt við bókstafinn J. Skýringin er sú að í upphafi fellur oftast til kostnaður við fjárfestingu og fjárfesting í uppbyggingarfasa sem gerir það að verkum að verðmæti lækkar. Að nokkrum árum liðnum má gera ráð fyrir að ábati fjárfestinga byrji að koma til þ.e. þegar umbreyting hefur átt sér stað og fjárfestingarnar byrja að skila arð. Endanlegt uppgjör á fjárfestingunni liggur samt ekki fyrir fyrr en eignir hafa verið seldar og sjóðnum slitið. Líftímaþróun á verðmæti slíkra fjárfestinga er því gjarnan líkjast svokallaðri J-kúrfu.
Hvernig hefur þetta gengið hjá EFÍA?
Frá árinu 2011 hafa innlendar sérhæfðar fjárfestingar sjóðsins skilað um 2.712 milljónum króna í hagnað af samtals 7.153 milljóna króna fjárfestingu.
Á myndum sem fylgja er hægt að sjá árangur einstakra fjárfestinga eftir stöðu þeirra:
Nýhafnar fjárfestingar eru merktar ljósbláum lit.
Fjárfestingar sem komnar eru vel á veg eru merktar bláum lit.
Fjárfestingar sem er lokið eru merktar dökkgráum lit.
Framtaksfjárfestingar:
Framtakssjóður Íslands:
Árið 2010 var ákveðið að fjárfesta í Framtakssjóð Íslands þar sem tilgangurinn var að taka þátt í að móta fjárhagslega og rekstrarlega endurreisn íslensks atvinnulífs. Framtakssjóðurinn fjárfesti í níu fyrirtækjum á starfstíma sínum, þar á meðal í Icelandair, Icelandic Group, N1 og Invent Farma. Sjóðnum var slitið árið 2022. Árleg ávöxtun var um 22%..
Stefnir íslenski athafnasjóðurinn:
Árið 2011 ákvað EFÍA að taka þátt í sjóð á vegum Stefnis sem meðal annars fjárfesti í Högum, Sjóvá og 66 Norður. Sjóðnum var slitið árið 2022. Árleg ávöxtun var um 17%.
Kjölfesta:
Árið 2012 fjárfesti EFÍA í sjóðnum Kjölfestu sem rekinn var í samstarfi Virðingar og ALM ráðgjafar. Sjóðurinn fjárfesti meðal annars í Meniga, Oddi, Senu og Íslands hótelum. Árleg ávöxtun er um 3%.
Framtaksfjárfestingarsjóðurinn HORN II:
Árið 2013 ákvað EFÍA að fjárfesta í sjóðnum Horn II á vegum sjóðastýringarfélagsins Landsbréfa sem meðal annars fjárfesti í félögunum Hvatningu, stærsta eiganda Bláa Lónsins, Fáfni Offshore og Kea hótelum. Sjóðnum var slitið árið 2022. Árleg ávöxtun var um 25%.
Stefnir íslenski athafnasjóðurinn II:
Árið 2013 fjárfesti EFÍA í framhaldssjóð Stefnis íslenska athafnasjóðsins á vegum Stefnis, Íslenska athafnasjóðsins II. Sjóðurinn fjárfesti meðal annars í Festi, Skeljungi, Verne Global og Icelandia (áður Kynnisferðir). Árleg ávöxtun er um 15%.
Edda slhf:
Árið 2013 fjárfesti EFÍA í innlenda sjóðnum Eddu hjá sjóðastýringarfyrirtækinu Virðingu. Sjóðurinn fjárfesti meðal annars í Dominos, Securitas, Marorku og Íslands hótelum. Árleg ávöxtun er um 10%.
SF V (Festi):
Árið 2014 fjárfesti EFÍA í félagi sem var stofnað utan um fjárfestingu í fyrirtækinu Festi, sem á sínum tíma voru meðal annars verslanirnar Krónan og Elko. Sjóðnum var slitið árið 2020. Árleg ávöxtun var um 27%.
PCC Bakki:
Árið 2015 fjárfesti EFÍA í kísilverksmiðju PCC við Húsavík. Þrátt fyrir að líftíma verkefnisins sé ekki lokið þá hafa miklir erfiðleikar í rekstrarumhverfinu sem og í rekstri verksmiðjunnar orðið til þess að sjóðurinn hefur fært eignina niður í 46% af upphaflegri fjárfestingu.
United Silicon:
Árið 2015 fjárfesti EFÍA í kísilverinu United Silicon í Helguvík á Reykjanesi. Sívaxandi rekstrarerfiðleikar og rökstuddur grunur um sviksemi varð þess valdandi að fjárfestingin tapaðist að endingu að fullu árið 2017 en hún nam um 0,5% af eignum sjóðsins.
Stefnir íslenski athafnasjóðurinn III:
Árið 2016 fjárfesti EFÍA í framhaldssjóði Stefnis íslenska athafnasjóðsins sem meðal annars fjárfesti í Reykjavík EDITION, Terra, HD (áður Hamri), Lyfju og Men&Mice. Árleg ávöxtun er um 15%.
Framtaksfjárfestingarsjóðurinn HORN III:
Árið 2016 fjárfesti EFÍA í sjóðnum Horn III á vegum sjóðastýringarfélagsins Landsbréfa sem meðal annars fjárfesti í Ölgerðinni, Hópbílum, Líflandi og Bílaleigu Flugleiða. Árleg ávöxtun er um 5%.
TFII:
Árið 2017 fjárfesti EFÍA í TFII, upphaflega á vegum Íslenskra verðbréfa, nú í rekstri Landsbréfa, sem hefur fjárfest í Hreinsitækni, Hringrás, Coripharma og Genis. Árleg ávöxtun er um 7%.
Hvatning (Bláa lónið):
Árið 2019 fjárfesti EFÍA í sjóði á vegum Landsbréfa sem fór með eignarhlut í Bláa lóninu. Félaginu var slitið árið 2024 og bréfin afhent. Árleg ávöxtun var um 8%.
Blávarmi (Bláa lónið):
Árið 2019 fjárfesti EFÍA í Blávarma sem fjárfesti í Bláa lóninu. Félaginu var slitið árið 2024 og bréfin afhent. Árleg ávöxtun var um 7%.
Stefnir íslenski athafnasjóðurinn IV:
Árið 2021 fjárfesti EFÍA í framhaldssjóði SÍA á vegum Stefnis sem meðal annars hefur fjárfest í VAXA, Good Good, Rotovia og Örnu. Þessi fjárfesting er skammt á veg komin en árleg ávöxtun hingað til um -4%.
VEX I:
Árið 2021 fjárfesti EFÍA í framtakssjóðnum VEX. Sjóðurinn hefur nú fjárfest í AGR Dynamics, Opin kerfi, Annata, Varist, Icelandic Provisions og Öryggismiðstöðin. Þessi fjárfesting er skammt á veg kominn en árleg ávöxtun hingað til um 8%.
Framtaksfjárfestingarsjóðurinn Horn IV:
Árið 2021 fjárfesti EFÍA í sjóðnum Horn IV á vegum sjóðastýringarfélagsins Landsbréfa sem hefur fjárfest í GoPro, S4S, Eðalfangi, First Water, REA (Airport Associates) og Styrkás. Þessi fjárfesting er skammt á veg kominn en árleg ávöxtun hingað til um 8%.
CP Invest (Coripharma):
Árið 2022 fjárfesti EFÍA í sjóðnum CP Invest sem fjárfesti í Coripharma, sem er samheitalyfjaþróunar og lyfjaframleiðslufyrirtæki í Hafnarfirði. Fjárfestingin er meðfjárfesting með sjóðnum Iðunni og er eignarhaldið í Coripharma eina eign CP Invest. Árleg ávöxtun um -7%.
IS Haf fjárfestingar:
Árið 2023 fjárfesti EFÍA í sjóðnum IS Haf. Sjóðurinn hefur nú fjárfest í Thor landeldi og Kapp. Þessi fjárfesting er skammt á veg komin en árleg ávöxtun hingað til um -10%.
VEX II:
Árið 2024 fjárfesti EFÍA í sjóðnum VEX II. Sjóðurinn hefur nú fjárfest í Kaptio. Þessi fjárfesting er skammt á veg komin.
Vísis fjárfestingar:
Iðunn:
Árið 2021 fjárfesti EFÍA í sjóðnum Iðunni á vegum Kviku eignastýringar. Sjóðurinn hefur nú fjárfest í Coripharma, EpiEndo Pharmaceuticals, Kara Connect, NeckCare og PLAIO. Þessi fjárfesting er skammt á veg komin en árleg ávöxtun hingað til um 0%.
Crowberry II:
Árið 2021 fjárfesti EFÍA í sjóðnum Crowberry II. Sjóðurinn hefur þegar fjárfest í 18 félögum bæði í innlendum og erlendum vaxtarfélögum. Sjóðurinn hefur fjárfest meðal annars í Embla, Scaleup Finance, Quansient, Rocky Road, Tiimo og Kickercloud. Þessi fjárfesting er skammt á veg komin en árleg ávöxtun hingað til um -11%.
Eyrir Vöxtur:
Árið 2021 fjárfesti EFÍA í sjóðnum Eyri vexti á vegum Eyrir Invest. Sjóðurinn hefur fjárfest í 8 félögum, en þau eru: Passio, Beqom (PayAnalytics), Fólk Reykjavík, Justikal, Tulipop, Laki Power, DTE og Hedera DX. Þessi fjárfesting er skammt á veg komin en árleg ávöxtun hingað til um -10%.
Frumtak IV:
Árið 2024 fjárfesti EFÍA í sjóðnum Frumtak IV á vegum Frumtaks Ventures. Sjóðurinn hefur fjárfest í Avilabs, Heima og Optise. Þessi fjárfesting er skammt á veg komin.
Fjárfestingar í innviðum:
Jarðvarmi (HS Orka):
Árið 2011 fjárfesti EFÍA í HS Orku gegnum sameiginlegt eignarhaldsfélag í eigu lífeyrissjóða Jarðvarma. HS Orka er innviðafjárfesting í tengslum við framleiðslu og sölu endurnýjanlegra orkugjafa. Árleg ávöxtun er um 7%.
SF VI slhf (Verne Global):
Árið 2014 fjárfesti EFÍA í sjóðnum SF VI á vegum Stefnis sem var fjárfesting í gagnaverinu Verne Global á Reykjanesi. Sjóðnum var slitið árið 2021. Árleg ávöxtun var um 8%.
HSV Eignarhaldsfélag (HS Veitur):
Árið 2014 fjárfesti EFÍA í félaginu HS Veitum gegnum eignarhaldsfélagið HSV, sem er innviðafjárfesting í tengslum við vatnsdreifikerfi. Árleg ávöxtun er um 21%.
Innviðir fjárfestingar:
Árið 2015 fjárfesti EFÍA í innviðasjóði sem m.a. fer með eignarhlut í HS Veitum og Verðbréfamiðstöð Íslands. Árleg ávöxtun er um 9%.
Innviðir fjárfestingar II:
Árið 2022 fjárfesti EFÍA í framhaldssjóði í rekstri Summu sem fer m.a. með eignarhlut í Mílu ehf. Þessi fjárfesting er skammt á veg komin en árleg ávöxtun hingað til um -2%.
Fasteignafjárfestingar:
Fasteignasjóður SRE II:
Árið 2012 tók EFÍA þátt í sjóðnum SRE II á vegum sjóðastýringarfyrirtækis Stefnis þar sem meðal annars var fjárfest í húsnæði Nýherja, Hótel Borg og höfuðstöðvum Advania. Sjóðnum var slitið árið 2019. Árleg ávöxtun var um 24%.
FAST - I:
Árið 2012 tók EFÍA þátt í sjóðnum FAST-I á vegum sjóðastýringarfélagsins Íslandssjóða sem meðal annars fjárfesti í Höfðatorgi, húsnæði Ríkislögreglustjóra og Fjársýslu ríkisins. Sjóðnum var slitið árið 2020. Árleg ávöxtun var um 9%.
SRE III:
Árið 2024 tók EFÍA þátt í sjóðnum SRE III á vegum sjóðastýringarfyrirtækis Stefnis þar sem fjárfest var með öðrum lífeyrissjóðum í kaupum á íbúðaleigufélaginu Heimstaden, en nafni félagsins hefur verið breytt í Íveru. Þessi fjárfesting er skammt á veg komin.
Fjárfestingar í sérhæfðum lánum:
Veðskuldabréfasjóðir:
Á árunum 2014-2023 hefur EFÍA fjárfest í veðskuldabréfasjóðunum Alda Credit Fund (I, II, III), Veðskuld (II, III), ST1 fagfjárfestasjóður, SÍL 2, Landsbréf Veðskuldabréfasjóð (I, II) og í lok árs 2023 fjárfest í Alda Credit Fund IV og SIV Credit Fund. Um er að ræða fjárfestingu í innlendum veðskuldabréfum þar sem undirliggjandi eru meðal annars skuldabréf með veð í fasteignum. Árleg ávöxtun veðskuldabréfasjóðanna er um 9%.
Ármúli lánasafn:
Árið 2015 fjárfesti EFÍA í fagfjárfestasjóði í rekstri Stefnis. Um var að ræða eignatryggt skuldabréf til fjármögnunar á skilgreindu lánasafni MP banka. Sjóðnum var slitið árið 2018. Árleg ávöxtun var um 7%.
AL 2 fagfjárfestasjóður:
Árið 2018 fjárfesti EFÍA í AL 2 á vegum Stefnis sem var fjárfesting í óskráðum skuldaviðurkenningum fyrirtækja í gegnum Kviku banka hf. Sjóðnum var slitið árið 2021. Árleg ávöxtun var um 5%.
Spálíkan
Þegar fjárfest er í sérhæfðum fjárfestingum með beinum og óbeinum hætti, þá stofnast jafnan skuldbinding í tilviki óbeinnar fjárfestingar í gegnum sjóði þess efnis að fjárfestir skuldbindur sig til að fjárfesta fyrir tiltekna fjárhæð á fjárfestingartímabili sjóðsins. Sjóðurinn „kallar“ svo eftir hluta af peningnum smám saman eftir því sem að fjárfestingartækifæri finnast sem fjárfest er í.
Seinna, þegar fjárfestingarnar hafa skilað tilætluðum árangri eða rekstrartíma sjóðsins er að líða undir lok byrjar sjóðurinn að selja eignirnar og greiðir andvirðið að frádregnum þóknunum til baka til fjárfestisins. Til að skipuleggja og áætla hvernig slíkar fjárfestingar þróast yfir tíma í eignasafni lífeyrissjóðsins sem breytist í stærð yfir tíma, notar sjóðurinn spálíkan sem var þróað við Yale-háskóla.
Þetta líkan hjálpar til við að spá fyrir um hvenær líklegt er að sjóðir kalli eftir peningum og hvenær þeir muni byrja að skila arði. Það tekur líka einnig tillit til annarra þátta, eins og hversu hratt sjóðirnir fjárfesta, hversu lengi þeir starfa og hvaða ávöxtun er líkleg. Með hjálp líkansins getur lífeyrissjóðurinn séð hvernig fjárflæði fer inn og út úr fjárfestingum og spáð fyrir um hvernig heildareignirnar þróast yfir tíma.
Þessar upplýsingar eru mikilvægar til að ákveða hvaða skuldbindingar og fjárfestingar lífeyrissjóðurinn þarf að ráðast í til að ná og halda framtíðarmarkmiðum sínum um samval eignaflokka yfir tíma. Með því að nota þetta líkan getur sjóðurinn betur skipulagt fjárfestingar sínar og tryggt að þær séu í samræmi við langtímamarkmið og áhættustýringu.
Mynd 2. Hlutfall innlendra sérhæfðra fjárfestinga hjá EFÍA.
Framtíðarhorfur
Með þeirri þekkingu og reynslu sem hefur byggst upp í fjárfestingum í innlendum sérhæfðum fjárfestingum má reikna með að áherslan verði í auknu mæli annars vegar á frekari meðfjárfestingar með sjóðum og hins vegar í einstökum beinum fjárfestingum.
Uppbygging innviða hefur verið vanrækt víða í íslensku samfélagi síðustu ár og gangi áform stjórnvalda fram um samstarfsverkefni opinberra aðila og einkaaðila (e. Public-Private Partnership) eftir, má búast við fjölmörgum áhugaverðum arðbærum verkefnum sem henta langtíma fjárfestum. Slík verkefni geta falið í sér uppbyggingu á vegum, brúm, orkuinnviðum og öðrum mikilvægum mannvirkjum sem stuðla að efnahagslegum vexti og þróun.
Tækifærin liggja víða í þessum eignaflokki og því full ástæða að vera virkur þátttakandi og grípa þau tækifæri sem leynast hér. Þetta á við hvort sem er um að ræða fjárfestingar í vísissjóðum, framtaks- og innviðafjárfestingum eða öðrum verkefnum. Með því að vera virkur þátttakandi getur lífeyrissjóðurinn tryggt sér aðgang að fjölbreyttum og arðbærum fjárfestingartækifærum sem stuðla að langtíma ávöxtun og stöðugleika í eignasafninu.