EFÍA er umhugað um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Persónuvernd einstaklinga skiptir sjóðinn miklu máli og er lögð sérstök áhersla á að persónuupplýsingar séu unnar með lögmætum, sanngjörnum og gagnsæjum hætti.
EFÍA útvistar eignastýringu og daglegum rekstri sjóðsins, að undanskilinni framkvæmdastjórn, til Arion banka á grundvelli samnings við bankann. Nær öll vinnsla persónuupplýsinga fer því fram hjá Arion banka. EFÍA og Arion banki koma fram sem sameiginlegir ábyrgðaraðilar á þeim vinnslum sem Arion banki gerir f.h. sjóðsins. Öll vinnsla persónuupplýsinga fer fram í samræmi við gildandi persónuverndarlög. Nánar um hvernig Arion banki vinnur persónuupplýsingar f.h. EFÍA er að finna í persónuverndaryfirlýsingu Arion banka, hér.
Persónuverndaryfirlýsingin tekur til allra sjóðfélaga sjóðsins og annarra sem kunna að hafa samband við EFÍA.