Mínar síður
Sjóðfélagar
SéreignÞjónusta við sjóðfélagaÞjónusta við launagreiðendurUmsóknir
Útgreiðslur
EftirlaunMakalífeyrirBarnalífeyrirÖrorkulífeyrirErlendir ríkisborgar
Rekstur sjóðsins
ÁvöxtunEignasamsetning
Lán
LífeyrissjóðslánLánareglurVerðskráÞróun vaxta
Uppýsingar
Spurt og svarað um lánÚrræði í greiðsluerfiðleikum
Stjórnskipulag
Stjórn og nefndirStefnurÁbyrgar fjárfestingar og stjórnarhættirHlutverk sjóðsins
Regluverk
Reglur og samþykktirPersónverndVefkökurFyrirvarar
Útgefið efni
FréttirGreinarTryggingafræðileg úttektÁrsfundargögn

Við tökum vel á móti þér

Sérfræðingar Arion banka eru ávallt tilbúnir að aðstoða þig

Þjónusta við sjóðfélagaMínar síður
Þjónusta

Þjónusta við sjóðfélaga

Símatími alla virka daga milli klukkan 10-12 og 13-15.

Bókaðu tíma hjá sérfræðingum
Arion banka þegar þér hentar.

Hafðu samband

Sjóðfélagar: 444-8960

Launagreiðendur: 444-6500

efia@arionbanki.is

Styttu þér leið
LífeyrissjóðslánÚtgreiðslurSéreign
Útgefið efni
FréttirGreinar

Borgartúni 19, 105 Reykjavík

kt: 650376-0809

Reikningur: 0329-26-007171

Lífeyrissjóðsnúmer: 180

FyrirvararStillingar fótspora
  1. Um Efía
  2. ▸
  3. Stjórnskipulag
  4. ▸
  5. Ábyrgar fjárfestingar og stjórnarhættir

Ábyrg­ar fjár­festingar og stjórnar­hættir

Eftirlaunasjóður FÍA leggur mikla áherslu á að mæta samtímaþörfum sjóðfélaga, án þess þó að tefla í hættu framtíðarþörfum komandi kynslóða. Við viljum ná markmiðum okkar án þess að skilja eftir okkur sviðna jörð.

Landslag - tekið með dróna

Sjálfbær langtímaávöxtun

Hugmyndafræði ábyrgra fjárfestinga gengur út á að stuðla að jákvæðum áhrifum á umhverfið, félagslega þætti og stjórnarhætti, (UFS e. ESG) skila sjálfbærri langtímaávöxtun og draga úr áhættu. Margir fjárfestar velja að horfa sérstaklega til þessara þátta þegar fjárfestingarkostir eru metnir og ákveðið í hverjum þeirra á að fjárfesta.

Áhugi á þessum áherslum hefur aukist undanfarið og Eftirlaunasjóður FÍA hefur ákveðið að horfa til þessara þátta í starfsemi sinni með hliðsjón af grunngildum Sameinuðu þjóðanna um samfélagsábyrgð.

Frá árinu 2018 hefur verið stefnt á að vera í fararbroddi þegar kemur að ábyrgum fjárfestingum og stjórnarháttum.

Um­hverfi

Umhverfisleg viðmið snúa að frammistöðu og eftirliti í loftslags- og umhverfismálum og því hvernig gætt er að umhverfisáhrifum starfseminnar. Fjárfest er í fjárfestingarkostum sem stuðla að sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda.

Félags­legir þættir

Félagsleg viðmið snúa að því hvernig hugað er að starfsfólki og samfélaginu sem það starfar í s.s. jafnrétti, almennum mannréttindum og öryggi bæði innan fyrirtækja og innan samfélagsins í heild.

Stjórnar­hættir

Stjórnarhættir snúa m.a. að stjórnun og skipulagi, birgjum, kjörum starfsfólks og aðgerðum gegn spillingu og mútum.

Yfirlýsingar

Yfirlýsing um neikvæð áhrif
Yfirlýsing um sjálfbærniáhættu

Í brenni­depli

Arion banki er rekstraraðili og sá aðili sem sér um eignastýringu sjóðsins. Starfsfólk Eignastýringu Arion banka og Eftirlaunasjóðs FÍA tekur virkan þátt í innlendri og alþjóðlegri umræðu um málefni ábyrgra fjárfestinga og hefur skrifað fjölda greina ásamt því að hafa tekið þátt í pallborðsumræðum, staðið fyrir fræðslu- og upplýsingarfundum og gefið út rit um umboðsskyldu.

Stefna um ábyrgar fjárfestingar
Landslag - tekið með dróna