Þjónusta við launagreiðendur
Sími: 444 6500 og netfang: launagreidendur@arionbanki.is

Sími: 444 6500 og netfang: launagreidendur@arionbanki.is

Iðgjöld til EFÍA skulu vera samkvæmt kjarasamningum FÍA, nú að lágmarki 20% af launum sjóðfélaga. Framlag launþega er 4% en framlag launagreiðanda 16%. Sjóðfélaga er heimilt að lækka iðgjald til samtryggingarverndar og verja þannig hluta iðgjaldsins til öflunar lífeyrisréttinda í séreign. EFÍA tekur eingöngu við samtryggingarframlagi og rekur ekki séreignardeild.
Skilvirkasta og þægilegasta leiðin fyrir launagreiðendur, sem hafa ekki aðgang að launakerfi, að senda inn skilagreinar er í gegnum Launagreiðendavef.
Býður m.a. upp á nýskráningu skilagreina, afritun eldri skilagreina og innsendingu textaskráa. Krafa myndast sjálfkrafa í netbanka launagreiðanda. Auk þess geta allir launagreiðendur sótt launagreiðendayfirlit og fengið yfirsýn yfir heildarstöðu. Ef annar en launagreiðandi sér um iðgjaldaskil er hægt að veita þeim aðila umboð, sjá nánar hér.
Krafa myndast í netbanka launagreiðanda.
Nánar um rafræn skil í gegnum launakerfi inn á skilagrein.is.
Skilagreinar eru óþarfar þar sem um fastar mánaðarlegar greiðslur er að ræða. Krafa myndast sjálfkrafa í netbanka launagreiðanda. Upplýsa þarf lífeyrissjóðinn um breytingar á launum/reiknuðu endurgjaldi. Eins ef stöðva á fastar greiðslur. Senda þarf okkur kennitölu greiðanda, kennitölu launþega, upphæð heildarlauna fyrir skatt og frá hvaða tímabili á að skrá föstu greiðslurnar
Notandanafn og lykilorð: Launagreiðandi velur sjálfur í launakerfi
Kennitala: 650376-0809
Reikningsnúmer: 329-26-007171
Lífeyrissjóðsnúmer: 180
IBAN: IS62 0329 2600 7171 6503 7608 09
SWIFT: ESJAISRE
Gjalddagi: 10. dagur næsta mánaðar eftir launatímabil
Eindagi: Síðasti virki dagur næsta mánaðar eftir launatímabil
Á hverju hausti sendir RSK frá sér lista yfir kröfur til Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda. Þessar kröfur verða til ef launagreiðandi hefur ekki staðið skil á neinum skylduiðgjöldum til lífeyrissjóðs fyrir launþega sína síðasta iðgjaldaár. Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda öðlast forræði yfir kröfunni en hægt er að óska eftir að EFÍA yfirtaki hana. Frestur til að óska eftir yfirtöku er almennt 1 mánuður frá fyrsta bréfi.
Á hverju hausti sendir RSK frá sér lista yfir kröfur til EFÍA. Þessar kröfur verða til ef launagreiðandi hefur staðið skil á hluta skylduiðgjalda til EFÍA fyrir launþega sína fyrir síðasta iðgjaldaár. EFÍA öðlast forræði yfir kröfunni.