Upplýsingar birtar á vefsíðu Efía (hér eftir einnig „sjóðurinn“) eru samkvæmt bestu vitund sjóðsins á hverjum tíma og ekki er tekin ábyrgð á ákvörðunum sem teknar eru á grundvelli upplýsinga frá sjóðnum. Árangur í fortíð gefur ekki vísbendingu um árangur í framtíð. Sjóðurinn getur ekki ábyrgst að upplýsingarnar séu réttar og kunna upplýsingar á vefnum og skoðanir sem þar koma fram að breytast án fyrirvara. Sjóðurinn ber því ekki í neinu tilfelli ábyrgð á tjóni sem kann að hljótast af upplýsingagjöf eða ráðgjöf sjóðsins, né tjóni sem rekja má beint eða óbeint til notkunar á vef sjóðsins né tjóni sem rekja má til þess að ekki er hægt að nota vefinn, um skemmri eða lengri tíma.
Efía á höfundaréttinn á öllum þeim upplýsingum sem fram koma á vef sjóðsins, nema annað sé sérstaklega tekið fram eða leiða megi af eðli máls. Skriflegt samþykki sjóðsins þarf til að endurbirta upplýsingarnar sem koma fram á vef sjóðsins, dreifa þeim eða afrita þær. Ekki skiptir máli hvers eðlis þær upplýsingar eru né í hvaða tilgangi ætlunin er að endurbirta þær, afrita þær eða dreifa þeim. Sjóðfélögum Efía er þó heimilt að vista slíkar upplýsingar til einkanota.