
Innlendar sérhæfðar fjárfestingar
Eftirlaunasjóður félags íslenskra atvinnuflugmanna leggur áherslu á gagnsæi og að sjóðfélagar hafi greiðan aðgang að upplýsingum um starfsemi sjóðsins. Á vefsíðu EFÍA má finna lykilupplýsingar með helstu upplýsingum um rekstur og fjárfestingar.
Í þessari umfjöllun verður farið yfir hvernig sjóðurinn hefur nálgast uppbyggingu á innlendum sérhæfðum fjárfestingum ásamt því að stiklað verður á stóru um einstakar fjárfestingar. Sem langtímafjárfestir hefur EFÍA bæði svigrúm og möguleika til að byggja upp vel dreift eignasafn til lengri tíma. Í því samhengi gegna innlendar sérhæfðar fjárfestingar mikilvægu hlutverki í heildarsamsetningu eigna safnsins, oft byggir ávöxtun þeirra á öðrum drifkröftum en til að mynda hefðbundnir skráðir fjármálagerningar og tengjast oft síður skammtímasveiflum á fjármála mörkuðum.
Með sérhæfðum fjárfestingum er yfirleitt átt við fjárfestingar sem eru frábrugðnar hefðbundnum hlutabréfa- og skuldabréfafjárfestingum að því leyti að þær eru oft óskráðar, með lengri binditíma og takmarkaðan seljan leika til skemmri tíma. Aðgengi fagfjárfesta, svo sem líf eyrissjóða, að þessum eignaflokki hefur bæði verið í formi beinnar fjárfestingar eða óbeinnar fjárfestingar í gegnum ýmiss konar form af sérhæfðum sjóðum.