Það er hægt að sækja um eftirlaun á mínum síðum en hafir þú ekki tök á því má finna eyðublöð hér á síðunni.
Lífeyrir er greiddur út mánaðarlega, eftir á, á síðasta virka degi hvers mánaðar
Lífeyrisréttindi eru verðtryggð
Afgreiðsla lífeyrisumsókna tekur að jafnaði 4 til 8 vikur
Afgreiðsla örorkulífeyrisumsókna tekur almennt lengri tíma
Tekjuskattur er greiddur af öllum útgreiðslum. EFÍA sér um að standa skil á staðgreiðslu til ríkisins. Nánar á vefsíðu RSK.
Mælt er með að leita ráðgjafar hjá Tryggingastofnun vegna mögulegra áhrifa sem útgreiðslur lífeyrissparnaðar geta haft á greiðslur frá TR. Nánar á vefsíðu TR.
