Í byrjun júní, að undangenginni kynningu á ársfundi EFÍA, kusu sjóðfélagar um samþykktabreytingu sem mun heimila sjóðfélögum að taka hálfan lífeyri kjósi þeir svo. Breytingin leiðir af lögum um almannatryggingar sem tóku breytingum um síðast liðin áramót. Breytingin fól í sér möguleika lífeyrisþega á að taka hálfan lífeyri frá Tryggingastofnun án skerðinga gegn því að lífeyrisþegi sé einnig að fá hálfan lífeyri frá öllum lífeyrissjóðum sem hann á réttindi í. Lög um almannatryggingar setja þó það skilyrði að samanlagður hálfur lífeyrir frá lífeyrissjóðum og Tryggingastofnun jafngildi að lágmarki lágmarkslífeyri samkvæmt lögum um almannatryggingar á hverjum tíma.
Eftirlaunasjóður FÍA (EFÍA ) hefur um nokkurt skeið boðið sjóðfélögum sínum upp á hagstæð sjóðfélagalán. Allir sjóðfélagar geta sótt um lán gegn fasteignaveði og sjóðurinn innheimtir hvorki lántökugjöld né uppgreiðslugjöld. Í desember 2015 ákvað stjórn EFÍA að auka við lánaframboð sjóðsins og bæta vaxtakjör til sjóðfélaga til muna. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og sjóðfélagar sýndu nýjum lánum og bættum kjörum mikinn áhuga sem er ánægjulegt, en aukning í útlánum EFÍA hefur verið margföld á við aðra lífeyrissjóði sem þó hafa einnig aukið sín útlán verulega. Þegar breytingarnar voru gerðar nam lánasafn sjóðsins um 6,6% af heildareignum, frá þeim tíma hefur sjóðurinn sannarlega vaxið en lánasafnið hefur vaxið vel umfram það og nemur nú 17% af heildareignum sjóðsins. Ljóst er að útlánavöxtur getur haldið áfram með sama hraða í nokkurn tíma og fari svo verður lánasafnið orðið um helmingur eigna sjóðsins að þremur árum liðnum.
Eftirlaunasjóður FÍA (EFÍA )hefur um nokkurt skeið boðið sjóðfélögum sínum upp á hagstæð sjóðsfélagalán. Allir sjóðfélagar geta sótt um lán gegn fasteignaveði og sjóðurinn innheimtir hvorki lántökugjöld né uppgreiðslugjöld. Sjóðfélögum hafa staðið til boða verðtryggð lán með breytilegum vöxtum en kröfur um aukið framboð og valmöguleika þegar kemur að lántöku hafa aukist og þeim vill stjórn sjóðsins mæta