
Ráðstöfun lífeyrisiðgjalds í séreignarsparnað
Segðu mér hvernig lífshlaup þitt verður og ég skal segja þér hvernig er best að skipuleggja lífeyrissparnaðinn þinn.
Sjóðfélögum EFÍA býðst að ráðstafa 4% eða 8% af iðgjaldi sínu í séreignarsjóð að eigin vali og greiða þá samsvarandi lægra iðgjald til öflunar samtryggingarréttinda í sjóðinn. Þar sem ráðstöfun þessi er óafturkræf er eðlilegt að margir velti fyrir sér kostum.