
Annáll EFÍA 2016
Árið hófst á nokkrum breytingum en í upphafi árs setti stjórn sjóðnum nýjar lánareglur og var þar um að ræða þó nokkrar breytingar sjóðfélögum til hagsbóta. Veðhlutföll voru rýmkuð, tveimur nýjum lánsformum bætt við og vaxtaviðmiðum breytt. Vextir lánanna hafa síðan þá verið endurskoðaðir ársfjórðungslega og eru í dag 3,45% á verðtryggðum lánum með breytilegum vöxtum, 3,75% á verðtryggðum lánum með föstum vöxtum til fimm ára og 6,30% á óverðtryggðum lánum með föstum vöxtum til þriggja ára. Samhliða þessari breytingu var einnig kynnt til leiks ný og betrumbætt lánareiknivél sem kemur sér vel þegar valkostum lána hefur fjölgað. Skemmst er frá því að segja að sjóðfélagar hafa tekið þessum nýjungum fagnandi og aðsókn í sjóðfélagalán hefur aukist svo um munar.