
Afkoma Eftirlaunasjóðs FÍA árið 2016
Árið 2016 var krefjandi ár fyrir EFÍA líkt og aðra lífeyrissjóði. Nafnávöxtun ársins nam 0,2% sem svarar til -1,9% raunávöxtunar. Þetta er töluverður viðsnúningur frá síðasta ári en þá var EFÍA með hæstu raunávöxtun allra sjóða í landinu eða 14,04%. Ef horft er til meðalávöxtunar sl. ára megum við hins vegar vel við una og röðum okkur meðal þeirra efstu á þann mælikvarða. En sjóðurinn okkar er með þriðju hæðstu meðalávöxtun sl. tveggja ára og sjöundu hæstu meðalávöxtun sl. fimm ára.