19.05.2020

Viðbótar­frest­ur - fram­boð til vara­stjórnar

Óskað var eftir framboðum til stjórnar EFÍA með frétt á heimasíðu sjóðsins 4. maí. Framboðsfrestur rann út kl. 17:00 í gær 18. maí.

Framboð hafa borist til aðalstjórnar og varastjórnar frá hæfum sjóðfélögum af báðum kynjum. Enn vantar þó upp á að framboð hafi borist frá konu í varastjórn en slíkt framboð er nauðsynlegt til að tryggt sé að sjóðfélagar geti kosið stjórn sem uppfyllir skilyrði laga um kynjahlutfall.*

Er því kallað sérstaklega eftir framboði kvenkyns sjóðfélaga í varastjórn með framlengdum fresti til kl. 17:00 föstudaginn 22. maí.

* Í samræmi við 29. gr. laga 129/1997 skal tryggt að hlutfall hvors kyns sé ekki lægra en 40% meðal aðalmanna og varamanna.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira