07.07.2026

Breyt­ingar á framkvæmda­stjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Guðmundur Th. Ragnarsson hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri sjóðsins. Stjórn EFÍA þakkar honum fyrir störf hans í þágu sjóðsins og gott samstarf á liðnum árum.

Á meðan unnið er að ráðningu nýs framkvæmdastjóra hefur Þröstur Sigurðsson verið ráðinn tímabundið sem framkvæmdastjóri sjóðsins. Þröstur hefur áralanga reynslu af rekstri lífeyrissjóða og hefur meðal annars starfað sem framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Rangæinga frá árinu 2001.

Jafnframt hafa orðið breytingar á stjórn sjóðsins. Stjórn EFÍA er nú skipuð Kjartani Jónssyni, formanni, Salvöru Egilsdóttur, varaformanni, ásamt Sturlu Ómarssyni, Sigrúnu Hjartardóttur og Evu Rós Brink.

Breytingarnar hafa ekki áhrif á daglegan rekstur sjóðsins eða þjónustu við sjóðfélaga. Starfsemi sjóðsins heldur áfram með eðlilegum hætti á meðan unnið er að ráðningu nýs framkvæmdastjóra. Upplýsingar um ráðninguna verða kynntar þegar ákvörðun liggur fyrir.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira