01.06.2017

Vext­ir óverð­tryggðra lána EFÍA lækka

Vextir óverðtryggðra lána Eftirlaunasjóðs FÍA lækka úr 6,1% í 5,9% frá og með 1.júní. Lækkunin nær aðeins til nýrra lána þar sem óverðtryggð lán sjóðsins eru með föstum vöxtum til þriggja ára í senn. Veðsetning getur að hámarki verið 65% af metnu markaðsvirði íbúðarhúsnæðis. Sjóðurinn býður upp á viðbótarlán upp að 75% veðhlutfalli sem ber vaxtaálag upp á 0,75%.

Vextir verðtryggðra lána haldast óbreyttir í 3,45% fyrir lán með breytilegum vöxtum og 3,75% fyrir lán með föstum vöxtum til 5 ára í senn. Sjóðfélagalán EFÍA eru uppgreiðanleg hvenær sem er án uppgreiðslugjalds.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira