15.01.2015

Vext­ir á sjóð­félagalánum hækka í 3,95% frá 15. fe­brú­ar

Samkvæmt lánareglum EFÍA taka lánakjör til sjóðfélaga mið af meðalávöxtunarkröfu íbúðabréfa HFF34 að viðbættu 0,75% álagi og eru vextir endurskoðaðir 15. febrúar ár hvert. Vextir af sjóðfélagalánum geta lægst orðið 3,75% eins og verið hefur undanfarin ár. Ástæða fyrir þessu viðmiði er sú, að lögð er sú skylda á hendur stjórna lífeyrissjóða að ávaxta fé sjóðanna með hliðsjón af þeim kjörum sem best eru boðin á hverjum tíma með tilliti til ávöxtunar og áhættu. Sjóðfélagalán eru eins og hver annar fjárfestingakostur fyrir lífeyrissjóði en kjósi þeir að veita slík lán ber þeim að ákvarða vexti þeirra með hliðsjón af þeim kjörum sem best eru boðin á hverjum tíma fyrir sjóðina.

Nú hefur meðalávöxtunarkrafa íbúðabréfa HFF34 hækkað úr 2,50% árið 2013 í 3,20% árið 2014 og því munu vextir af sjóðfélagalánum hækka frá 15. febrúar nk. í 3,95%. Sjóðfélagalán eru verðtryggð með jöfnum greiðslum eða jöfnum afborgunum, að vali sjóðfélaga. Þau eru uppgreiðanleg hvenær sem er á lánstímanum án kostnaðar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira