11.10.2016

Vel heppn­aðir fræðslufundir um út­greiðsl­ur lífeyris­sparnaðar

Í síðustu viku voru haldnir tveir afar vel heppnaðir fræðslufundir um útgreiðslur lífeyrissparnaðar á Akureyri og Egilsstöðum. Fundirnir voru vel sóttir á báðum stöðum.

Á fundunum kynntu Snædís Ögn Flosadóttir og Helga Sveinbjörnsdóttir frá eignastýringu Arion banka, reglur um útgreiðslur lífeyrissparnaðar og skattalega meðferð en einnig fóru þær yfir samspil útgreiðslna úr lífeyrissparnaði og frá Tryggingastofnun.

Næstu fræðslufundir verða auglýstir síðar á vefsíðu Arion banka.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira