01.12.2023

Vegna dóms um um­reikning áunninna lífeyris­rétt­inda

Í gær var kveðinn upp dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem ákvæði í samþykktum Lífeyrissjóðs Verslunarmanna var dæmt ólögmætt. Um er að ræða ákvæði sem varðar umreikning áunninna lífeyrisréttinda vegna spár um hækkandi lífaldur.

Ákvæðið sem deilt var um var ætlað að mæta hækkandi lífaldri sjóðfélaga þar sem spáð er að ævi yngri sjóðfélaga lengist meira en þeirra sem eldri eru. Þessi spá byggir á lífslíkutöflum sem gefnar eru út af Félagi íslenskra tryggingastærðfræðinga og staðfestar af fjármála- og efnahagsráðherra.

Álíka breytingar hafa verið gerðar á samþykktum Eftirlaunasjóðs FÍA.

Í ljósi þess að Lífeyrissjóður Verslunarmanna mun að öllum líkindum áfrýja héraðsdóminum til Landsréttar eða Hæstaréttar er fyrirséð að einhver tími mun líða þar til endanleg niðurstaða fæst í málið.

Þrátt fyrir að ekki sé um endanlega niðurstöðu að ræða mun stjórn EFÍA nú láta skoða fordæmisgildi dómsins og meta möguleg áhrif hans á samþykktir sjóðsins og sjóðfélaga.
Stjórn EFÍA mun því láta skoða hvort grípa þurfi til aðgerða í millitíðinni. Um leið og frekari upplýsingar liggja fyrir munu þær verða kynntar fyrir sjóðfélögum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira