28.05.2020

Vaxta­lækkun á sjóð­félagalánum EFÍA

Stjórn EFÍA hefur ákveðið að lækka vexti á óverðtryggðum lánum sjóðsins sem bera fasta vextir til 3 ára og á verðtryggðum lánum sjóðsins sem bera breytilega vexti.

  • Verðtryggðir breytilegir vextir sjóðfélagalána lækka úr 2,1% í 1,99% og tekur lækkunin gildi 1. júlí 2020 en tilkynna þarf um lækkun breytilegra vaxta með eins mánaðar fyrirvara. Lækkunin gildir um ný og þegar veitt lán með breytilegum vöxtum sem kveða á um að vextir breytist ársfjórðungslega.

  • Óverðtryggðir vextir sjóðfélagalána EFÍA lækka úr 5,05% í 4,60% og tekur lækkunin gildi 1. júní. Lækkunin gildir um ný útlán sjóðsins, þegar veitt lán halda sínum vaxtakjörum þar til þriggja ára fastvaxtatímabili lýkur. Sjóðfélögum er þó frjálst að endurfjármagna án lántökugjalds einu sinni á almanaksári. Ef endurfjármagnað er oftar en einu sinni á almanaksári þá þarf að greiða lántökugjald að upphæð nú 65.000 kr.

Vakin er athygli á að sjóðfélagalán EFÍA eru uppgreiðanleg hvenær sem er á lánstímanum án kostnaðar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira