28.02.2020

Vaxta­lækkun á sjóð­félagalánum EFÍA

Stjórn EFÍA hefur ákveðið að lækka vexti á óverðtryggðum lánum sjóðsins sem bera fasta vextir til 3 ára úr 5,40% í 5,05% frá og með 1. mars 2020.

Lækkunin nær til nýrra útlána sjóðsins en þegar veitt lán halda sínum vaxtakjörum þar til 3 ára fastvaxtatímabili þess lýkur. Sjóðfélögum er þó frjálst að endurfjármagna án lántökugjalds einu sinni á almanaksári. Ef endurfjármagnað er oftar en einu sinni á almanaksári þá þarf að greiða lántökugjald að upphæð nú 65.000 kr.

Vakin er athygli á að sjóðfélagalán EFÍA eru uppgreiðanleg hvenær sem er á lánstímanum án kostnaðar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira