01.03.2019

Vaxta­breyt­ing á sjóð­félagalánum og breyt­ing á lána­reglum EFÍA

Stjórn EFÍA hefur ákveðið að hækka vexti á óvertryggðum lánum sjóðsins sem bera fasta vexti til 3 ára og lækka vexti á verðtryggðum lánum með breytilegum vöxtum. Við ákvörðun breytilegra vaxta verðtryggðra lána sjóðsins er horft til breytinga á meðalávöxtunarkröfu RIKS21 síðustu þrjá almanaksmánuði að viðbættu vaxtaálagi.

  • Verðtryggðir breytilegir vextir sjóðfélagalána lækka úr 2,7% í 2,5% og tekur lækkunin gildi 1. apríl 2019 en tilkynna þarf um lækkun breytilegra vaxta með eins mánaðar fyrirvara. Lækkunin gildir um ný og þegar veitt lán með breytilegum vöxtum sem kveða á um að vextir breytist ársfjórðungslega.

  • Verðtryggðir vextir, fastir til fimm ára haldast óbreyttir í 3,75%.

  • Óverðtryggðir vextir sjóðfélagalána EFÍA hækka úr 6,4% í 6,5% og tekur hækkunin gildi 1. mars. Hækkunin gildir um ný útlán sjóðsins, þegar veitt lán halda sínum vaxtakjörum þar til þriggja ára fastvaxtatímabili lýkur.

Sjóðfélagalán EFÍA eru með jöfnum greiðslum eða jöfnum afborgunum, að vali sjóðfélaga. Þau eru uppgreiðanleg hvenær sem er á lánstímanum án kostnaðar. Vextir nýrra lána og lána með breytilegum vöxtum eru endurskoðaðir á þriggja mánaða fresti, þ.e. í febrúar, maí, ágúst og nóvember. Gildandi vextir eru birtir á heimasíðu sjóðsins.

Breyting á lánareglum EFÍA.

Breytingin felst í því að hámarkslánsfjárhæð á lánum sem tekin eru þegar ekki er um fasteignakaup að ræða hækkar úr 30 m.kr. í 40 m.kr. Lánareglurnar í heild sinni má kynna sér hér.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira