01.12.2017

Vaxta­breyt­ing á sjóð­félagalánum EFÍA

Stjórn EFÍA hefur ákveðið að lækka vexti á bæði óverðtryggðum sjóðfélagalánum og verðtryggðum sjóðfélagalánum með breytilegum vöxtum. Við ákvörðun breytilegra vaxta verðtryggðra lána sjóðsins er horft til breytinga á meðalávöxtunarkröfu RIKS21 síðustu þrjá almanaksmánuði að viðbættu vaxtaálagi.

  • Vextir óverðtryggðra lána EFÍA lækka úr 5,75% í 5,65% eða um 0,1% frá og með deginum í dag, 1. desember 2017

  • Vextir á verðtryggðum lánum með breytilegum vöxtum lækka úr 3,35% í 3,2% eða um 0,15% frá og með 1. janúar 2018

  • Vextir á verðtryggðum lánum með föstum vöxtum til 5 ára í senn haldast óbreyttir, 3,75%

Lækkunin á vöxtum óverðtryggðra lána nær aðeins til nýrra lána þar sem lán sjóðsins eru með föstum vöxtum til þriggja ára í senn.

Sjóðfélagalán EFÍA eru með jöfnum greiðslum eða jöfnum afborgunum, að vali sjóðfélaga. Þau eru uppgreiðanleg hvenær sem er á lánstímanum án kostnaðar. Vextir nýrra lána og lána með breytilegum vöxtum eru endurskoðaðir á þriggja mánaða fresti, þ.e. í febrúar, maí, ágúst og nóvember. Gildandi vextir eru birtir á heimasíðu sjóðsins.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira