01.03.2018

Vaxta­breyt­ing á sjóð­félagalánum EFÍA

Stjórn EFÍA hefur ákveðið að lækka vexti á verðtryggðum lánum með breytilegum vöxtum. Við ákvörðun breytilegra vaxta verðtryggðra lána sjóðsins er horft til breytinga á meðalávöxtunarkröfu RIKS21 síðustu þrjá almanaksmánuði að viðbættu vaxtaálagi.

  • Verðtryggðir breytilegir vextir sjóðfélagalána lækka úr 3,20% í 3,00% og tekur lækkunin gildi 1. apríl en tilkynna þarf um lækkun breytilegra vaxta með eins mánaðar fyrirvara. Lækkunin gildir um ný og þegar veitt lán með breytilegum vöxtum sem kveða á um að vextir breytist ársfjórðungslega.

  • Verðtryggðir vextir, fastir til fimm ára haldast óbreyttir, 3,75%.

  • Óverðtryggðir vextir sjóðfélagalána EFÍA haldast óbreyttir, 5,65%

Sjóðfélagalán EFÍA eru með jöfnum greiðslum eða jöfnum afborgunum, að vali sjóðfélaga. Þau eru uppgreiðanleg hvenær sem er á lánstímanum án kostnaðar. Vextir nýrra lána og lána með breytilegum vöxtum eru endurskoðaðir á þriggja mánaða fresti, þ.e. í febrúar, maí, ágúst og nóvember. Gildandi vextir eru birtir á heimasíðu sjóðsins.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira