03.07.2019

Úr­ræði um ráð­stöf­un á viðbótar­lífeyris­sparnaði fram­lengt

Samþykkt hefur verið frumvarp þess efnis að heimilt verði að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á fasteignaveðlán og til húsnæðissparnaðar í 2 ár til viðbótar þ.e. til 30. júní 2021.

RSK birti nýverið fréttá vefsvæði sínu ásamt því að senda tölvupóst til þeirra sem eru að nýta sér úrræðið. Þar kemur fram að ef vilji er til að halda áfram að nýta sér úrræðið þá þurfi að skrá sig inn á www.leidretting.is og staðfesta áframhaldandi þátttöku í úrræðinu fyrir 30. september 2019.

Athugið að ef ráðstöfun er ekki framlengd fellur hún úr gildi frá og með 1. júlí 2019, þeir sem staðfesta framlengingu fyrir 30. september nk. fá þá greitt uppsafnaða inneign frá og með 1. júlí 2019 inn á lánið sitt en eftir 30. september virkjast ráðstöfun einungis aftur frá þeim mánuði þegar ný umsókn berst RSK og uppsöfnuð inneign er þá ekki greidd inn á lánið.

Heimildirnar eru enn háðar ákveðnum skilyrðum og hámörkum sem má kynna sér nánar á vef RSK í gegnum eftirfarandi hlekki:

English version from RSK

Permission to allocate private pension premium towards mortgages has been extended until June 2021, in accordance to Act no. 60/2019 on compulsory insurance of pension rights and the operations of pension funds.

Applicant with an active application can now connect to www.leidretting.is and decide to extend the allocation period.

Extension must be sent before 30th of September 2019. If application is sent later, then it will only be valid from the month which it is submitted. Premium from July 2019 until new application is submitted will not be paid into the mortgage.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira