21.05.2019

Upplýsingar um stjórnar­kjör

Á ársfundi sjóðsins 28. maí 2019 hefst rafrænt stjórnarkjör þar sem kosið verður um tvö sæti í aðalstjórn sjóðsins og eitt sæti í varastjórn. Stjórn FÍA tilnefnir á móti, í síðasta sinn, einn aðalmann og tvo varamenn til eins árs en sjóðfélagar munu kjósa um þau stjórnarsæti til tveggja ára á ársfundi 2020. Icelandair tilnefnir tvo aðalmenn og tvo varamenn til eins árs.

Á vefsíðu EFÍA hafa nú öll framboð verið birt ásamt skýrslu kjörnefndar EFÍA. – sjá hér.
Þar má jafnframt nálgast helstu upplýsingar um frambjóðendur ásamt upplýsingum um framkvæmd kosninga.

Sjóðfélagar eru eindregið hvattir til að kynna sér framboðin, mæta á ársfund sjóðsins þann 28. maí nk. kl. 11:00 og taka í kjölfarið þátt í kosningu til stjórnar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira