12.05.2021

Um­sögn EFÍA um frum­varp til breyt­inga á lögum um lífeyris­sjóði

Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp um breytingar á lögum 129/1997 um lífeyrissjóði. EFÍA skilaði inn umsögn þar sem lögð var áhersla á þau atriði sem skipt geta sjóðfélaga EFÍA mestu máli og fylgir umsögnin í heild þessari frétt.

Gagnrýndi sjóðurinn sérstaklega lögfestingu á svokallaðri tilgreindri séreign og breytingum á verðtryggingu lífeyris.

Í frumvarpinu er lögfest 15,5% lágmarksiðgjald í stað 12% lagmarksiðgjalds hingað til, þá skal launþegum vera heimilt að ráðstafa þessum viðbótar 3,5% í tilgreinda séreign sem lýtur stífari útgreiðslureglum en önnur séreign. Líkt og sjóðfélagar þekkja er þeim nú þegar heimilt að ráðstafa hluta af því 20% iðgjaldi sem greitt er samvkæmt kjarasamningi FÍA til séreignarsjóðs að eigin vali. Verði tilgreind séreign lögfest felur það því í sér aukið flækjustig, skerðingu á valfrelsi sjóðfélaga og dýrara lífeyriskerfi.

Þá er jafnframt lagt til í frumvarpinu að lífeyrisgreiðslur skuli verðbættar einu sinni á ári í stað mánaðarlega líkt og nú er. Slík breyting felur í sér kjaraskerðingu fyrir lífeyrisþega sjóðsins og því alls ómögulegt að styðja slíka tillögu.

Umsögn sjóðsins

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira