13.11.2013

Um 160 manns á fræðslufundi um út­greiðsl­ur lífeyris­sparnaðar

Um 160 manns sóttu fræðslufund Arion banka um útgreiðslur lífeyrissparnaðar sem haldinn var í höfuðstöðvum bankans í gær. Fyrirlesarar voru Arnaldur Loftsson, framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins og Inga Tinna Sigurðardóttir sérfræðingur hjá Arion banka. Meðal atriða sem farið var yfir á fundinum voru reglur um útgreiðslur lífeyrissparnaðar, samspil útgreiðslna úr lífeyrissparnaði og Tryggingastofnun og hvað þarf að hafa í huga áður en ákvörðun um útgreiðslur er tekin. Auk þess var sagt frá Lífeyrisgáttinni sem er nýjung á íslenskum lífeyrismarkaði og Stöðugreiningu lífeyrissparnaðar sem er einstök nýjung í vöruframboði Arion banka.

Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá hversu margir komu að máli við ráðgjafa eftir fundinn og lýstu yfir áhuga sínum á því að nýta sér Stöðugreininguna, en með henni öðlast sjóðfélagi á aðgengilegan hátt yfirsýn yfir heildarstöðu lífeyrissparnaðarins og áætlaða stöðu við starfslok. Jafnframt fær hann upplýsingar um hvernig hagstæðast sé að standa að útgreiðslum með það að leiðarljósi að hámarka þær.

Vegna mikillar eftirsóknar þurfti að loka fyrir skráningu á fundinn en til að bregðast við áhuga sjóðfélaga verður annar fræðslufundur um sama málefni haldinn þann 28. nóvember í Borgartúni 19. 
 
Skráning hér

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira