20.08.2014

Þjónusta við sjóð­félaga EFÍA í Borgar­túni 18

Í sumar opnaði Arion banki nýtt og glæsilegt útibú að Borgartúni 18, þar sem Byr og Sparisjóður vélstjóra var áður til húsa. Þjónusta við sjóðfélaga EFÍA flyst frá Hlemmi yfir í nýja útibúið. Útibúinu á Hlemmi var lokað nú í byrjun ágúst. Sjóðfélagar eru hvattir til þess að koma í heimsókn í Borgartúnið og nýta sér þjónustuna.

Nýja útibúið er hannað frá grunni út frá því hvernig einstaklingar og fyrirtæki kjósa að nýta sér fjármálaþjónustu, þar sem kröfur um fjölbreytta þjónustu og gæði persónulegrar ráðgjafar er sett í öndvegi. Lögð er áhersla á nýjustu tækni í bankaþjónustu með nýrri kynslóð hraðbanka sem bjóða upp á fjölbreyttari aðgerðir en áður, s.s. innlagnir og greiðslu reikninga. Hraðbankarnir eru aðgengilegir viðskiptavinum umfram hefðbundinn þjónustutíma eða frá 7:00 á morgnana til 20:00 á kvöldin, alla daga vikunnar.

Persónuleg ráðgjöf og þjónusta er efld í nýja útibúinu og er fleira starfsfólk en áður til taks til að sinna sérhæfðri fjármálaþjónustu s.s. ráðgjöf á sviði sparnaðar, lífeyrismála og fjármögnunar íbúðarhúsnæðis. Þjónustusími sjóðfélaga EFÍA er 444 8960 eins og áður og netfangið er efia@arionbanki.is

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira