16.04.2019

Skip­un kjör­nefndar

Í samræmi við grein 4.2 í samþykktum sjóðsins hefur stjórn EFÍA skipað kjörnefnd vegna fyrirhugaðs stjórnarkjörs á ársfundi sjóðsins 2019.

Samkvæmt starfsreglum kjörnefndar er markmið með störfum hennar að tryggja sjóðfélögum EFÍA áreiðanlegri forsendur til að taka upplýsta ákvörðun um val í stjórn sjóðsins. Meðal hlutverka kjörnefndar er að hafa umsjón með framkvæmd stjórnarkjörs og leggja fram rökstutt mat á hæfi einstakra frambjóðenda til stjórnarsetu, mat nefndarinnar telst vera ráðgefandi. Kjörnefnd mun auglýsa eftir og yfirfara framboð með tilliti til þeirrar hæfni og reynslu sem nauðsynleg er til stjórnarsetu í lífeyrissjóði sem og að teknu tilliti til samsetningar stjórnar og hvað varðar breidd í fjölbreytni, hæfni og reynslu.

Kjörnefndina skipa:

  • Jónas Fr. Jónsson

  • Lára Sif Christiansen

  • Magnús Brimar Jóhannsson

Frekari upplýsingar um ársfund, stjórnarkjör og framboðsfresti verða birtar hér á vefsvæði sjóðsins á næstu dögum.

Starfsreglur kjörnefndar

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira