25.06.2019

Skip­an endur­skoðunar­nefndar og kosninga­þátt­taka

Í samræmi við grein 4.4. í samþykktum EFÍA þá hefur stjórn sjóðsins kosið Sturlu Ómarsson sem formann stjórnar og Geirþrúði Alfreðsdóttur sem varaformann stjórnar. Stjórn EFÍA hefur einnig í samræmi við grein 6.3. í samþykktum sjóðsins skipað þriggja manna endurskoðunarnefnd. Endurskoðunarnefndina skipa Þorvaldur Þorsteinsson, Sigríður Einarsdóttir og Guðlaugur Ingi Sigurðsson.

Hlutverk og tilgangur endurskoðunarnefndarinnar er m.a. að tryggja gæði ársreikninga og annarra fjármálaupplýsinga sjóðsins, gera tillögu um val á endurskoðanda og hafa eftirlit með fyrirkomulagi og virkni innra eftirlits og áhættustýringu sjóðsins.

Nánari upplýsingar má finna í starfsreglum endurskoðunarnefndar EFÍA.

Sundurliðun á kosningaþátttöku á ársfundi EFÍA 2019

Líkt og áður hefur komið fram var kjörsókn góð en 41,55% sjóðfélaga tóku þátt í stjórnarkjöri sjóðsins. Kosningaþátttaka var einna best meðal sjóðfélaga á aldursbilunum 31 – 40 ára annars vegar og 41 – 50 ára hinsvegar eða tæp 50% í fyrri aldurshópnum og rúm 47% í þeim seinni.

Nánari útlistun á kosningaþátttöku má sjá á myndinni hér fyrir neðan.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira