11.01.2023

Skatt­lagning lífeyris­greiðslna

Skylt er að greiða tekjuskatt af lífeyrisgreiðslum eins og öðrum tekjum. Gagnlegt er fyrir sjóðfélaga að þeir séu upplýstir um skattþrepin sem nú eru þrjú svo tryggja megi rétta skattlagningu og forðast skattskuld við álagningu næsta ár. Sjóðfélögum er ráðlagt að upplýsa sjóðinn um í hvaða skattþrepi skattlagning lífeyrisgreiðsla skuli hefjast þegar sótt er um útgreiðslu eða ef breytingar eiga sér stað. Persónuafsláttur og þrepamörk hafa nú hækkað um 10,7% á milli ára en skattprósentur haldast óbreyttar.

Staðgreiðsluhlutfallið vegna ársins 2023

  • Í skattþrepi 1 er 31,45% skattur á samtals skattskyldar mánaðarlegar tekjur að 409.986 kr.

  • Í skattþrepi 2 er 37,95% skattur á samtals skattskyldar mánaðarlegar tekjur á bilinu 409.987 kr. – 1.151.012 kr.

  • Í skattþrepi 3 er 46,25% skattur á samtals skattskyldar mánaðarlegar tekjur yfir 1.151.012 kr.

Persónuafsláttur 2023

Vilji sjóðfélagi nýta persónuafslátt ber honum að upplýsa sjóðinn um það. Fullur persónuafsláttur er 59.665 kr. á mánuði vegna ársins 2023.

Skattleysismörk 2023

Skattleysismörk lífeyrisgreiðslna eru 189.714 kr. á mánuði miðað við 100% nýtingu persónuafsláttar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira