23.10.2014

Sjóð­félag­ar EFÍA í heim­sókn í Arion banka

Í gær var móttaka fyrir sjóðfélaga EFÍA í nýju útibúi Arion banka í Borgartúni 18, í tilefni af því að þjónusta við sjóðfélaga hefur nú verið flutt þangað frá útibúinu á Hlemmi.

Sveinn Gíslason, svæðisstjóri Arion banka í Reykjavík og Ragnheiður Jóhannesdóttir, útibússtjóri, sýndu nýja útibúið og fóru yfir nýjungar í bankaþjónustu. Þá voru fjármálaráðgjafar á staðnum til skrafs og ráðagerða. Boðið var upp á léttar veitingar.

Persónuleg ráðgjöf og þjónusta er efld í nýja útibúinu og er fleira starfsfólk en áður til að sinna sérhæfðri fjármálaþjónustu s.s. ráðgjöf á sviði sparnaðar, lífeyrismála og fjármögnunar íbúðarhúsnæðis.

Sjóðfélagar eru hvattir til þess að nýta sér þjónustuna, koma í heimsókn í Borgartúnið, eða panta tíma hjá fjármálaráðgjafa. Þjónustusími sjóðfélaga EFÍA er 444 8960 eins og áður og netfangið er efia@arionbanki.is.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira