31.03.2023

Raf­ræn yfirlit og aukn­ar fjár­festingar­heimild­ir er­lendis

Nýlega samþykkti Alþingi breytingar á lífeyrissjóðalögunum sem varða upplýsingagjöf til sjóðfélaga og fjárfestingarheimildir lífeyrissjóðanna.

Yfirlit og upplýsingagjöf

Lífeyrissjóðum er nú heimilt að birta yfirlit og upplýsingar rafrænt.

EFÍA hefur fram til þessa sent yfirlit til sjóðfélaga á pappírsformi tvisvar á ári en upplýsingarnar hafa einnig verið aðgengilegar á mínum síðum sjóðsins.

Í kjölfar breytinga lífeyrissjóðslaganna munu yfirlit hér eftir eingöngu verða birt á rafrænan hátt, þar sem rafrænnar auðkenningar er krafist. Á mínum síðum sjóðsins geta sjóðfélagar óskað eftir því að fá yfirlitin send á pappírsformi, þeim að kostnaðarlausu.

Nýir sjóðfélagar

Nýtt ákvæði bætist nú við lögin sem felur í sér að lífeyrissjóðir eigi að veita nýjum sjóðfélögum upplýsingar um helstu réttindi sem ávinnast við greiðslu iðgjalda ásamt upplýsingum um skipulag og stefnu sjóðsins. EFÍA telur afar jákvætt að nýir sjóðfélagar séu upplýstir um skipulag og stefnu sjóðsins og hvernig réttindaávinnslu er háttað. Sjóðfélagar EFÍA, bæði nýir og eldri, geta nálgast þær upplýsingar hér.

Fjárfestingarheimildir

Nokkrar breytingar á fjárfestingarheimildum sjóðanna voru gerðar, ber þar helst að nefna breytingar á heimildum lífeyrissjóða til erlendra fjárfestinga. Lífeyrissjóðum hefur hingað til verið skylt að tryggja að lágmarki 50% af heildareignum samtryggingardeildar í sama gjaldmiðli og skuldbindingar hans. Nú hins vegar eru gerðar breytingar á því ákvæði í skrefum, úr 50% árið 2023 í 35% árið 2036. Með þessum breytingum geta lífeyrissjóðir aukið áhættudreifingu eignasafns enn frekar en EFÍA hefur lagt áherslu á það að fjárfesta í ólíkum eignaflokkum, atvinnugreinum og landsvæðum með það að markmiði að dreifa áhættu.

Hafi sjóðfélagar frekari spurningar er velkomið að hafa samband á efia@arionbanki.is eða í síma 444-8960.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira