05.06.2018

Raf­ræn kosning um sam­þykkta­breyt­ingar EFÍA 2018

Á ársfundi EFÍA sem haldinn var þann 9. maí sl. lagði stjórn sjóðsins fram tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins. Um er að ræða tillögur til samþykktabreytinga sem heimila sjóðfélögum að taka ellilífeyri í 50% hlutfalli frá 60 ára aldri ásamt því að fresta töku hálfs lífeyris til að allt að 80 ára aldurs með hækkun á hinum frestaða hluta. Við það að óska eftir hálfum lífeyri frá lífeyrissjóðum fæst hálfur lífeyrir frá Tryggingastofnun án skerðinga í samræmi við breytingar á lögum almannatrygginga nr. 100/2007, sem tóku gildi 1. janúar 2018 og reglugerð nr. 1195/2017 um sveigjanlega töku ellilífeyris og heimilisuppbótar. Breytingarnar leiða til aukins sveigjanleika fyrir sjóðfélaga í töku lífeyris.

Samkvæmt samþykktum sjóðsins skal fara fram allsherjaratkvæðagreiðsla sjóðfélaga um samþykktarbreytingar og hefur nú verið opnað fyrir rafræna kosningu sem fram fer hér.

Kosningin er opin frá 12:00 þriðjudaginn 5. júní til 12:00 þriðjudaginn 12. júní.

Gætt verður fyllsta trúnaðar við framkvæmd kosninganna og verða svör ekki rekjanleg til einstakra sjóðfélaga.

Ef einhverjar spurningar vakna eða ef óskað er eftir aðstoð við kosninguna má hafa samband við Guðmund Odd Eiríksson í síma 444-7406. Einnig má hafa samband í þjónustusíma sjóðfélaga 444 8960 eða senda póst á efia@arionbanki.is.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira