25.06.2020
Óverðtryggðir vextir sjóðfélagalána lækka í 4,20% þann 1. júlí
Stjórn EFÍA hefur ákveðið að lækka óverðtryggða vexti sjóðfélagalána úr 4,60% í 4,20%. Lækkunin tekur gildi 1. júlí nk. og gildir um ný útlán sjóðsins, þegar veitt lán halda sínum vaxtakjörum þar til þriggja ára fastvaxtatímabili lýkur. Sjóðfélögum er þó frjálst að endurfjármagna án lántökugjalds einu sinni á almanaksári. Ef endurfjármagnað er oftar en einu sinni á almanaksári þá þarf að greiða lántökugjald að upphæð nú 65.000 kr.
Vakin er athygli á að sjóðfélagalán EFÍA eru uppgreiðanleg hvenær sem er á lánstímanum án kostnaðar.