30.05.2014

Opn­að hef­ur ver­ið fyrir um­sóknir um ráð­stöf­un viðbótar­lífeyris­sparnaðar inn á lán á lei­drett­ing.­is

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána. Sótt er um á vef ríkisskattstjóra leidretting.is.

Til að þú eigir möguleika á hámarksnýtingu skattfrelsisins sem í boði er gætirðu þurft að:

  • greiða í viðbótarlífeyrissparnað fyrir tímabilið júlí 2014 til og með júní 2017

  • hækka framlag þitt í 4% ef þarf *

  • sækja um úrræðið á vefsvæði ríkisskattstjóra leidretting.is.

* Ef mánaðartekjur eru 694.444 kr. hjá einstaklingi eða 1.041.667 kr. hjá hjónum eða aðilum sem uppfylla skilyrði til samsköttunar , eða hærri, nýtist skattfrelsið að fullu m.v. 4% framlag launþega og 2% framlag launagreiðanda. Afgangurinn, ef um ræðir, hækkar inneign þína í viðbótarlífeyrissparnaði.

Nánari upplýsingar á arionbanki.is/leidrettingin.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira