12.05.2023

Óheimil áform rík­isins baka því skaða­bóta­skyldu

Áform fjármála- og efnahagsráðherra um lagasetningu er varðar slit og uppgjör á ÍL-sjóði byggja á ófullnægjandi greiningu á lagalegum og fjárhagslegum þáttum og fela í sér tilraun til að sniðganga fjárhagslegar skuldbindingar ríkisins. Fyrirhuguð löggjöf fæli í sér eignarnám, væri andstæð stjórnarskrá og til þess fallin að baka íslenska ríkinu skaðabótaskyldu sem kynni að hafa í för með sér veruleg viðbótarfjárútlát af hálfu ríkissjóðs í formi dráttarvaxta og kostnaðar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í athugasemdum tuttugu lífeyrissjóða við áformaskjal ráðherra sem birt hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda.

Í athugasemdum lífeyrissjóðanna tuttugu, sem LOGOS lögmannsþjónusta sendi í samráðsgáttina í dag, kemur jafnframt fram að áform fjármála- og efnahagsráðherra séu til þess fallin að kasta rýrð á orðspor íslenska ríkisins og trúverðugleika á fjármálamarkaði. Þau gætu raskað jafnvægi á fjármálamarkaði með ófyrirséðum afleiðingum fyrir eignaverð og hagsmuni fjárfesta. Áform ráðherra séu því illa ígrunduð og geti kostað ríkið umtalsverðar fjárhæðir auk langdreginna málaferla bæði innanlands og erlendis.

Meðfylgjandi eru athugasemdir þær sem lífeyrissjóðirnir gera við áform ráðherra, auk yfirlits yfir helstu punkta.

Athugasemdir við áformaskjal 20230512

Athugasemdir við áformaskjal - samantekt

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira