19.05.2016

Óbreyttir vext­ir á sjóð­félagalánum EFÍA

Í lánareglum EFÍA er tekið fram að vextir á lánum sem bera verðtryggða breytilega vexti skulu endurskoðaðir ársfjórðungslega. Vextir taka mið af meðalávöxtunarkröfu RIKS21 sl. þriggja almanaksmánaða að viðbættu vaxtaálagi stjórnar, nú 0,75%.

Nú hefur meðalávöxtunarkrafa RISK21 sl. þrjá almanaksmánuði verið óbreytt frá síðasta vaxtaákvörðunardegi eða 2,70%. Því munu vextir verðtryggðra lána með breytilegum vöxtum vera þeir sömu eða 3,45%. Vextir óverðtryggðra lána með föstum vöxtum til þriggja ára og verðtryggðra lána með föstum vöxtum til fimm ára eru einnig óbreyttir.

Sjóðfélagalán EFÍA eru með jöfnum greiðslum eða jöfnum afborgunum, að vali sjóðfélaga. Þau eru uppgreiðanleg hvenær sem er á lánstímanum án kostnaðar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira