26.06.2015

Nýr framkvæmda­stjóri EFÍA

Snædís Ögn Flosadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Eftirlaunasjóðs Félags íslenskra atvinnuflugmanna.

Snædís hefur starfað hjá Arion banka og forverum hans frá árinu 2006 og á Eignastýringarsviði Arion banka frá árinu 2008. Nú síðast starfaði Snædís við Eignastýringu fagfjárfesta en hún hefur einnig unnið sem sérfræðingur á Eignastýringarsviði og lengst af sem gæðastjóri og verkefnastjóri. Í störfum sínum hefur hún öðlast viðtæka reynslu af rekstri lífeyrissjóða.

Snædís er með B.Sc gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfamiðlun.

Snædís mun taka við starfi framkvæmdastjóra 1. júlí nk.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira