20.04.2018

Ný stað­setning - lífeyris­ráð­gjaf­ar í höfuð­stöðv­um Arion banka, Borgar­túni 19

Arion banki sér um vörslu og daglegan rekstur Eftirlaunasjóðs FÍA. Tekin hefur verið sú ákvörðun að frá og með 20. apríl færist lífeyrisráðgjöf og þjónusta yfir götuna og fari fram hjá lífeyrisráðgjöfum í höfuðstöðvum bankans, Borgartúni 19. Lánaráðgjöf verður áfram veitt af fjármálaráðgjöfum í útibúi Arion banka í Borgartúni 18.

Fjölbreyttari þjónustuleiðir

Lögð hefur verið áhersla á að efla og bæta aðgengi að lífeyrisþjónustu með fjölbreyttum þjónustuleiðum. Liður í þeirri þróun er aukin sjálfsafgreiðsla sem fer fram í gegnum Mínar síður en eftir sem áður er alltaf ákveðin þörf fyrir persónulega ráðgjöf ekki síst þegar kemur að útgreiðslu lífeyris eða ráðstöfun skylduiðgjalds til séreignar.

Mínar síður – sjóðfélagavefur

Á Mínum síðum - sjóðfélagavef er hægt að sækja um útgreiðslu ellilífeyris og nálgast upplýsingar um hreyfingar og stöðu í EFÍA en einnig heildarstöðu í öðrum lífeyrissjóðum sem greitt hefur verið í um starfsævina. Við hvetjum alla til að uppfæra netfang og afþakka pappírsyfirlit og fylgjast með stöðunni rafrænt, sé þess kostur.

Fjarfundir og fundarbókanir

Auk móttöku í höfuðstöðvum Arion banka, þá er boðið upp á fjarfundi með lífeyrisráðgjafa í útibúum Arion banka á landsbyggðinni og í Kringlunni í Reykjavík. Mælt er með því að fundir með lífeyrisráðgjafa verði bókaðir fyrirfram þegar því verður við komið.

Er það von okkar að þessi breyting mælist vel fyrir og að allir finni þjónustuleiðir við sitt hæfi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira