11.06.2021

Niður­stöður kosninga um sam­þykkta­breyt­ingar

Tillögur stjórnar til samþykktabreytingar voru lagðar fram í ársfundarboði á heimasíðu sjóðsins og kynntar á ársfundi sjóðsins þann 3. júní 2021. Í kjölfar ársfundar voru þær bornar undir sjóðfélaga í allsherjar atkvæðagreiðslu líkt og samþykktir sjóðsins kveða á um.

Atkvæðagreiðsla var rafræn og stóð frá 4. júní kl. 14:00 til 11. júní kl. 14:00.

Niðurstöður liggja nú fyrir:

Tillögur til breytinga er varða umboð og sjálfstæði stjórnar
– Grein 4.1, 4.4 og 4.15 í samþykktum
Samþykkt með 94,79% greiddra atkvæða, 3,13% sögðu nei og 2,08% tóku ekki afstöðu.

Tillögur til breytinga er varða kjör endurskoðanda á ársfundi sjóðsins
– Grein 4.7 og 5.3 í samþykktum
Samþykkt með 96,88% greiddra atkvæða, 3,13% sögðu nei og 0,0% tóku ekki afstöðu

Tillögur til breytinga er varða atkvæðisrétt á ársfundi
– Grein 5.2 í samþykktum
Samþykkt með 91,67% greiddra atkvæða, 7,29% sögðu nei og 1,04%% tóku ekki afstöðu

Orðalags breytingar, framsetning skýrð
– Grein 15.1 og 15.2 í samþykktum, skipting réttinda milli sjóðfélaga og maka
– Grein 4.5, 4.6, 4.9 og 4.14 í samþykktum

Samþykkt með 95,83% greiddra atkvæða, 2,08% sögðu nei og 2,08% tóku ekki afstöðu

Nýjar samþykktir taka svo gildi að undangenginni staðfestingu Fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira