13.06.2018

Niður­stöður kosninga 2018

Kosningum um samþykktabreytingar EFÍA lauk í gær, þriðjudaginn 12. Júní kl. 12:00 og liggja niðurstöður nú fyrir.

Kosið var um tillögur til samþykktabreytinga sem heimila sjóðfélögum að taka ellilífeyri í 50% hlutfalli frá 60 ára aldri ásamt því að fresta töku hálfs lífeyris til að allt að 80 ára aldurs með hækkun á hinum frestaða hluta. Við það að óska eftir hálfum lífeyri frá lífeyrissjóðum fæst hálfur lífeyrir frá Tryggingastofnun án skerðinga í samræmi við breytingar á lögum almannatrygginga nr. 100/2007, sem tóku gildi 1. janúar 2018 og reglugerð nr. 1195/2017 um sveigjanlega töku ellilífeyris og heimilisuppbótar.
Breytingarnar leiða til aukins sveigjanleika fyrir sjóðfélaga í töku lífeyris.

Meirihluti atkvæða féll með breytingunni eða 96,77%. Stefnt er að því að breytingarnar taki gildi 1. September að undangenginni staðfestingu Fjármálaráðherra.

96,77% samþykktu
2,42% höfnuðu
0,81% sátu hjá

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira