13.06.2016

Niður­stöður kosninga

Á ársfundi EFÍA sem haldinn var þann 11. maí sl. lagði stjórn sjóðsins fram tillögu um breytingu á samþykktum sjóðsins. Um var að ræða tillögu um aukningu áunninna réttinda allra sjóðfélaga um 3% miðað við réttindi í árslok 2015. Samkvæmt samþykktum sjóðsins fór fram allsherjaratkvæðagreiðsla sjóðfélaga um samþykktarbreytinguna.

EFÍA naut liðsinnis FÍA við framkvæmd kosninganna og fékk afnot af kosningavef félagsins. Sjóðfélagar fengu því sent bréf með upplýsingum um kosningarnar og gátu kosið rafrænt. Allir sjóðfélagar fengu bréf með bréfpósti en jafnframt var sent bréf með tölvupósti á skráð netföng.

Kosningu lauk kl. 10:00 þann 6. júní 2016. Kosningaþáttaka var 21,1%. Aukning réttinda allra sjóðfélaga um 3% var samþykkt með 88,9% greiddra atkvæða. 10,5% höfnuðu aukningunni og 0,5% sátu hjá.

Lífeyrisgreiðslur hækka sem þessari aukningu nemur, í fyrsta sinn vegna greiðslna fyrir júlímánuð 2016, að undangengnu samþykki fjármálaráðherra.

Upplýsingar um efni samþykktabreytingarinnar sem kosið var um má nálgast hér.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira