27.05.2022

Niður­staða stjórnar­kjörs og kosninga um sam­þykkta­breyt­ingar

Kjöri til stjórnar EFÍA og kosningu um breytingar á samþykktum lauk kl. 13:00 í dag.

Kjör til aðalstjórnar hlaut Salvör Egilsdóttir. Kjör til varastjórnar hlutu Úlfar Henningsson og Arna Óskarsdóttir.

Atkvæði til aðalmanna dreifðust með eftirfarandi hætti:

  • Salvör Egilsdóttir: 166

  • Vala Gauksdóttir: 34

  • Skiluðu auðu: 9

Atkvæði til varamanna dreifðust með eftirfarandi hætti:

  • Úlfar Henningsson: 172

  • Arna Óskarsdóttir: 148

  • Vala Gauksdóttir: 88

  • Skiluðu auðu: 5

Niðurstöður kosninga um samþykktabreytingar:

Tillaga 1 var samþykkt með 78,47% greiddra atkvæða, 7,18% sögðu nei og 14,35% tóku ekki afstöðu
Tillaga 2 var samþykkt með 70,33% greiddra atkvæða, 16,27% sögðu nei og 13,40% tóku ekki afstöðu
Tillaga 3 var samþykkt með 68,42% greiddra atkvæða, 11,0% sögðu nei og 20,57% tóku ekki afstöðu
Tillaga 4 var samþykkt með 85,17% greiddra atkvæða, 7,18% sögðu nei og 7,66% tóku ekki afstöðu.

Samkvæmt gr. 24.1 í samþykktum EFÍA skoðast breytingar samþykktar ef meirihluti greiddra atkvæða fellur með tillögunni. Tillögurnar eru því allar samþykktar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira