14.10.2021

Niður­staða at­hug­un­ar á fyrir­komulagi út­vist­un­ar hjá EFÍA

Fjármálaeftirlitið hóf vettvangsathugun hjá EFÍA í marsmánuði 2021 en það er hluti af starfsemi eftirlitsins að vinna ýmsar úttektir hjá eftirlitsskyldum aðilum eins og lífeyrissjóðum. Vettvangsathugun er ítarleg úttekt sem felur í sér viðamikla gagnaöflun og viðtöl við stjórnarmenn, framkvæmdastjóra og valda starfsmenn.

Að þessu sinni var til skoðunar fyrirkomulag útvistunar og eftirlit EFÍA með útvistun sem og því hvernig eftirliti sjóðsins með rekstraráhættu hjá útvistunaraðila væri háttað.

Að lokinni ítarlegri úttekt á áðurnefndum þáttum er það niðurstaðan að Fjármálaeftirlitið gerir þrjár athugasemdir við sjóðinn. Þar af hefur EFÍA nú þegar brugðist við einni með fullnægjandi hætti að mati eftirlitsins. Vinna við þær tvær sem eftir standa er hafin.

Lesa má tilkynninguna í heild hér fyrir neðan.

Niðurstaða athugunar á fyrirkomulagi útvistunar hjá Eftirlaunasjóði FÍA

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira