22.05.2018

Niður­staða árs­fundar EFÍA 2018

Ársfundur EFÍA var haldinn 9. maí sl. í Hlíðasmára 8 í Kópavogi. Ágæt mæting var á fundinn, þar fóru einnig fram áhugaverðar umræður og komu margar fyrirspurnir til stjórnar og framkvæmdastjóra frá viðstöddum. Þar á meðal barst tillaga til ályktunar frá sjóðfélaga sem tekin var fyrir undir liðnum „önnur mál“. Tillagan snérist í stuttu máli um breytingar á lánareglum sjóðsins þar sem boðið yrði upp á hærra lánshlutfall til fyrstu fasteignakaupa. Góðar umræður sköpuðust um tillöguna og mun stjórn taka málið til frekari skoðunar. Sturla Ómarsson, stjórnarformaður, flutti skýrslu stjórnar, Snædís Ögn Flosadóttir, framkvæmdastjóri, fór yfir ársreikning sjóðsins og Hjörleifur Arnar Waagfjörð, forstöðumaður eignastýringar fagfjárfesta, fór yfir ávöxtun og fjárfestingarstefnu sjóðsins. Einnig tók til máls Vigfús Ásgeirsson, tryggingastærðfræðingur sjóðsins, en hann gerði grein fyrir tryggingafræðilegri stöðu sjóðsins. Fundarstjóri var Magnús Brimar Jóhannsson fyrrum stjórnarformaður EFÍA.

Rekstur sjóðsins gekk vel á árinu 2017, hrein eign til greiðslu lífeyris jókst um tæpa þrjá milljarða og var 34,4 milljarðar í árslok. Hrein raunávöxtun eigna var um 4,21% sem er 6,06% stiga aukning frá fyrra ári. Tryggingafræðileg staða sjóðsins versnaði eilítið á liðnu ári en er þó áfram traust og voru heildareignir í ársloks 2017 3,1% umfram heildarskuldbindingar.

Á fundinum voru jafnframt kynntar tillögur stjórnar um breytingar á samþykktum sjóðsins, sem að þessu sinni snéru að heimild sjóðfélaga til að fá greiddan ellilífeyri í 50% hlutfalli til allt að 80 ára aldurs í samræmi við breytingar á lögum um almannatryggingar nr. 100/2007. Breytingartillögur stjórnar munu í kjölfarið fara í atkvæðagreiðslu meðal sjóðfélaga á næstu dögum, breytingartillögurnar má finna hér og frétt um atkvæðagreiðsluna mun birtast samhliða boði um atkvæðagreiðslu.

Ein breyting varð á stjórn sjóðsins á starfsárinu, Salvör Egilsdóttir kom ný inn í varastjórn í stað Bryndísar Torfadóttur sem tók við af Ingu Láru Gylfadóttur. Stjórn EFÍA stendur óbreytt og hana skipa því Sturla Ómarsson, Ólafur W. Finnsson, Geirþrúður Alfreðsdóttir, Kristín Björg Eysteinsdóttir, Bogi Nils Bogason, Hlynur Elísson, Úlfar Henningsson, Guðlaugur Sigurðsson, Íris Hulda Þórisdóttir og Salvör Egilsdóttir.

Hér má nálgast kynningar frá fundinum:

Eftirlaunasjóður FÍA - ársfundur 2018

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira