27.05.2015

Niður­staða árs­fundar EFÍA 2015

Ársfundur EFÍA var haldinn 6. maí í Hlíðasmára 8 í Kópavogi og var hann vel sóttur af sjóðfélögum sem tóku þátt í líflegum umræðum. Sturla Ómarsson, stjórnarformaður, flutti skýrslu stjórnar, Jón L. Árnason, framkvæmdastjóri fór yfir ársreikning sjóðsins og Marinó Örn Tryggvason, aðstoðarframkvæmdastjóri Eignastýringar Arion banka fór yfir ávöxtun og fjárfestingarstefnu. Þá gerði Vigfús Ásgeirsson, tryggingastærðfræðingur, grein fyrir tryggingafræðilegri stöðu sjóðsins. Fundarstjóri var Hafsteinn Pálsson, formaður FÍA.

Rekstur sjóðsins gekk vel á árinu 2014, hrein eign til greiðslu lífeyris jókst um tæpa tvo milljarða og var 25,4 milljarðar í árslok. Hrein raunávöxtun eigna var 5,33%. Tryggingafræðileg staða sjóðsins batnaði á árinu og eru heildareignir í árslok 1,2% umfram heildarskuldbindingar.

Á fundinum voru kynntar tillögur stjórnar um breytingar á samþykktum, sem kveða á um breytingar á makalífeyri og breytingar á barnalífeyri, auk annarra breytinga. Í framhaldi af ársfundinum verður efnt til atkvæðagreiðslu meðal sjóðfélaga um samþykktarbreytingarnar, sem nánar verður kynnt á næstunni. Sjá má tillögur stjórnar undir frétt um ársfundinn hér á síðunni.

Ein breyting varð á stjórn sjóðsins, Inga Lára Gylfadóttir kom ný inn í varastjórn í stað Lindu Gunnarsdóttur. Stjórn EFÍA skipa Sturla Ómarsson, Geirþrúður Alfreðsdóttir, Kristján Egilsson, Kristín Björg Eysteinsdóttir og Bogi Nils Bogason. Varamenn eru Guðlaugur Sigurðsson, Hlynur Elísson, Íris Hulda Þórisdóttir, Úlfar Henningsson og Inga Lára Gylfadóttir.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira