15.05.2014

Niður­staða árs­fundar EFÍA 2014

Ársfundur EFÍA var haldinn 6. maí að Hlíðasmára 8 í Kópavogi. Fundurinn var vel sóttur og sköpuðust nokkrar umræður, einkum þó um fjárfestingarstefnu sjóðsins. Sturla Ómarsson, stjórnarformaður, flutti skýrslu stjórnar, Jón L. Árnason, framkvæmdastjóri fór yfir ársreikning sjóðsins, Marinó Örn Tryggvason, aðstoðarframkvæmdastjóri Eignastýringar Arion banka fór yfir ávöxtun og fjárfestingarstefnu og Vigfús Ásgeirsson, tryggingastærðfræðingur, rakti tryggingafræðilega stöðu sjóðsins. Fundarstjóri var Hafsteinn Pálsson, formaður FÍA.

Rekstur sjóðsins gekk vel á árinu 2013. Hrein eign til greiðslu lífeyris jókst um 3,1 milljarð og ávöxtun eigna á árinu var sú besta sem þekkist meðal íslenskra lífeyrissjóða, eða 9,56% raunávöxtun. Þá var tryggingafræðileg staða sjóðsins orðin jákvæð í árslok 2013 um 0,9% en réttindi sjóðfélaga voru skert um 11,2% á árinu. Engar tillögur til samþykktarbreytinga lágu fyrir fundinum. Kristinn F. Kristinsson, löggiltur endurskoðandi hjá PwC var endurkjörinn endurskoðandi og ákveðið var að stjórnarlaun yrðu óbreytt milli ára.

Stjórn EFÍA er áfram skipuð Sturlu Ómarssyni, Geirþrúði Alfreðsdóttur, Kristjáni Egilssyni, Kristínu Björgu Eysteinsdóttur og Boga Nils Bogasyni. Varamenn eru Guðlaugur Sigurðsson, Hlynur Elísson, Íris Hulda Þórisdóttir, Linda Gunnarsdóttir og Úlfar Henningsson.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira