18.03.2020

Lífeyris­þjónusta að­lög­uð að tíma­bundn­um breytt­um að­stæð­um

EFÍA leggur áherslu á að tryggja öryggi sjóðfélaga og starfsfólks og sporna við frekari útbreiðslu Corona veirunnar. Sjóðurinn er vel í stakk búinn til að tryggja sjóðfélögum góða þjónustu við breyttar aðstæður.

Sjóðfélagar geta framkvæmt flestar aðgerðir á Mínum síðum sem eru aðgengilegar á efia.is eða í gegnum Netbanka Arion banka. Tímabundið er móttaka sjóðfélaga í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19 lokuð, en lífeyrisráðgjafar geta leyst úr flestum fyrirspurnum í síma 444 8960 eða tölvupósti á efia@arionbanki.is. Ef erfitt reynist að ná inn í gegnum síma má óska eftir símtali með því að senda tölvupóst. Þá eru sjóðfélagar sem þurfa á lánaráðgjöf að halda hvattir til að senda fyrirspurn í tölvupósti fremur en að leita í útibú, þar sem opnun útibúa á höfuðborgarsvæðinu og þjónusta innan þeirra hefur einnig verið takmörkuð tímabundið, sjá frétt á vefsíðu Arion banka.

Starfsfólk óskar sjóðfélögum velfarnaðar og leggur áherslu á að afgreiða öll erindi eins skjótt og kostur er, en aðstæður gætu þó leitt til þess að t.d. umsóknir um lán og annað taki lengri tíma en ella.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
6. október 2026

Breytt verklag við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA samþykkti á fundi sínum 4. október 2026 breytingar á verklagi við ákvörðun vaxta sjóðfélagalána. Markmið breytinganna er að gera vaxtaákvarðanir fyrirsjáanlegri og tryggja skýrari upplýsingagjöf til lántaka.

Lesa meira
6. október 2026

Breyting á vöxtum sjóðfélagalána

Stjórn EFÍA tók ákvörðun um að hækka breytilega verðtryggða vexti sjóðsins.

Lesa meira
7. júlí 2026

Breytingar á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA

Breytingar hafa orðið á framkvæmdastjórn og stjórn EFÍA.

Lesa meira